
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á legudeild lyndisraskana Kleppi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
30.06.2026
Umsóknarfrestur
13.07.2026
Hjúkrunarfræðingur á legudeild lyndisraskana Kleppi
Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum til starfa á legudeild lyndisraskana á Kleppi.
Deildin er opin legudeild og dagdeild sem sinnir meðferð einstaklinga með lyndisraskanir og fjölþættan vanda. Á deildinni er unnið fjölbreytt og sérhæft starf sem einkennist af góðum starfsanda, virkri og stöðugri framþróun og fjölbreyttum tækifærum til starfsþróunar. Starfið hentar jafnt þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í hjúkrun og þeim sem búa yfir reynslu og vilja þróa sig áfram í sérhæfðu klínísku umhverfi. Deildin vinnur einnig í nánu samstarfi við meðferðarteymi göngudeildar lyndisraskana. Möguleiki er á að starfa að hluta til á göngudeild lyndisraskana.
Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Við leitum eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingi með góða samskiptahæfni. Viðkomandi þarf að hafa metnað og áhuga á að starfa við geðhjúkrun fyrir einstaklinga með alvarlegar geðraskanir
Upphafsdagur ráðningar er 1. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi og starfshlutfall 50-100%. Unnið er á breytilegum dag-, kvöld- og helgarvöktum eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mat, skipulagning, framkvæmd, skráning og eftirfylgd hjúkrunarmeðferða
Virk þátttaka í þverfaglegum teymum
Meðferðarsamtöl, samskipti, fræðsla, hvatning og víðtækur stuðningur við sjúklinga og aðstandendur þeirra
Þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar
Samábyrgð á góðu og innihaldsríku starfsumhverfi
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla af geðhjúkrun er kostur
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi sem og áhugi á geðhjúkrun
Góð samskiptahæfni og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
Stundvísi, áreiðanleiki og lausnamiðuð nálgun
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Kleppsgarður, 104 Reykjavík
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á legudeild lyndisraskana Kleppi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
30.06.2026
Umsóknarfrestur
13.07.2026