Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Húsnæð­is-, mannvirkja- og skipu­lags­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í umhverfismati

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.07.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026

Sérfræðingur í umhverfismati

VILT ÞÚ STARFA Á NÚTÍMALEGUM VINNUSTAÐ SEM LEGGUR ÁHERSLU Á FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTU OG ÁRANGURSDRIFIÐ VINNUUMHVERFI?

Skipulagsstofnun hefur nú sameinast HMS í eina öfluga stofnun (Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun) sem ber ábyrgð á ferlinu frá skipulagi til fullbúins mannvirkis ásamt öllu sem tengist manngerðu umhverfi. Með sameiningunni varð til sterkari stofnun með aukna getu til að vinna að þeim spennandi kerfisbreytingum í húsnæðis- og skipulagsmálum sem boðaðar eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

Við leitum því að metnaðarfullu og kraftmiklu starfsfólki í teymi umhverfismats til að efla þjónustu okkar við almenning og hagaðila í umhverfismati framkvæmda og áætlana. HMS býður upp á árangursdrifinn vinnustað með skýr markmið, stefnu og gildi sem hjálpa okkur að vinna saman og ná lengra. Þú færð tækifæri til að leggja þitt af mörkum í verkefnum sem skipta sköpum fyrir samfélagið.

Hlutverk teymis umhverfismats er vinna að lögbundinni afgreiðslu, ráðgjöf og upplýsingagjöf á sviði umhverfismats framkvæmda og áætlana.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Álitsgerð um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, ákvarðanir um matsskyldu framkvæmda og ráðgjöf til framkvæmdaraðila, leyfisveitenda og annarra hagsmunaaðila

  • Yfirferð og umsagnir um umhverfismat áætlana.

  • Ýmis verkefni við miðlun, leiðbeiningar og kynningarmál um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

  • Þátttaka í vinnu við þróun leiðbeininga, laga og reglugerða á sviði umhverfismats framkvæmda og áætlana.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði náttúrufræði eða skyldra greina

  • Þekking og reynsla af umhverfismati og skipulagsmálum

  • Þekking og reynsla af starfi innan opinberrar stjórnsýslu er kostur

  • Góð greiningarfærni, nákvæm og öguð vinnubrögð

  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu viðhorfi

  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

HMS leggur áherslu á fjölbreytni og hvetur alla áhugasama einstaklinga óháð kyni til að sækja um.

Sótt er um starfið á heimasíðu HMS

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ólafur Árnason

Tölvupóstur: olafur.arnason@hms.is

Elín Dögg Ómarsdóttir

Tölvupóstur: elin.omarsdottir@hms.is

Þjónustuaðili

Húsnæð­is-, mannvirkja- og skipu­lags­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í umhverfismati

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.07.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026