Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður í þvottahús - HSN Blönduósi

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

06.07.2026

Umsóknarfrestur

16.07.2026

Starfsmaður í þvottahús - HSN Blönduósi

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir starfsmanni í þvottahús. Um er að ræða 50% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka, flokkun og meðhöndlun á óhreinum textíl

  • Þvottur, þurrkun, straujun og frágangur á hreinum textíl

  • Einfaldar viðgerðir á textíl

  • Flutningur á textíl og öðrum varningi milli nærliggjandi starfsstöðva HSN

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Reynsla af vinnu í þvottahúsi er kostur

  • Frábær samskiptahæfni og jákvæðni

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Sveigjanleiki, nákvæm og ábyrg vinnubrögð

  • Íslensku- eða enskukunnátta

  • Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 16.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Margrét Jóhannesdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is

Sími: 432 4100

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður í þvottahús - HSN Blönduósi

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

06.07.2026

Umsóknarfrestur

16.07.2026