Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

14.07.2026

Umsóknarfrestur

27.07.2026

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma

Við óskum eftir ráðgjafa/ stuðningsfulltrúa til starfa á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma. Starfshlutfall er 80-100% og ráðið verður í starfið frá 10. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og á meðferðareiningunni eru töluverðir möguleikar til starfsþróunar.

Undir meðferðareininguna heyra legudeild, göngudeild, dagdeild og afeitrunardeild ólögráða ungmenna. Um er að ræða spennandi og gefandi starf þar sem unnið er í þverfaglegum teymum þvert á meðferðareininguna.

Meðferðareiningin þjónustar fólk með tvíþættan vanda, geðrænan vanda annars vegar og vímuefnavanda hins vegar á mismunandi þjónustustigum. Meðferðarnálgunin er fjölþætt, heildræn og ræðst af þörfum og getu hvers skjólstæðings og aðstandenda hans.

Á meðferðareiningunni eru fjölmörg tækifæri til vaxtar og mikiil samvinna er á milli allra deilda einingarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur þeirra

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar

  • Stuðla að öryggi sjúklinga og samstarfsfólks með virkri þátttöku í varnarteymi geðþjónustu

  • Starfa af heilindum og stuðla að góðum starfsanda

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur

  • Starfsreynsla af stuðningi við fólk með geðrænar áskoranir og vímuefnavanda er kostur

  • Faglegur metnaður og einlægur áhugi á geðhjúkrun og skaðaminnkun

  • Mjög góð samskiptahæfni

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi

  • Stundvísi og reglusemi

  • Jákvætt hugarfar, metnaður, seigla og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi

  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli

  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 3/5

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi, teymisvinna,

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Edda Þórisdóttir

aðstoðardeildarstjóri

Tölvupóstur: eddatho@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

14.07.2026

Umsóknarfrestur

27.07.2026