
Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
Upplýsingar um starf
Starf
Spænskukennari
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
25-70%
Starf skráð
11.08.2026
Umsóknarfrestur
21.08.2026
Spænskukennari
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum leitar eftir kennara í spænsku vegna afleysinga í eitt ár.
Kennsla hefst 20. ágúst og þarf viðkomandi að geta hafið störf strax.
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hefur sett sér stefnu um fjölbreytta kennsluhætti þar sem áhersla er samvinnu og á gæði náms.
Spænskukennari kennir spænsku og vinnur að umbótum í skólastarfi í samstarfi við annað starfsfólk skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Spænskukennari starfar eftir starfslýsingu kennara sem er ítarlega skilgreind í gæðahandbók á heimasíðu skólans, www.fiv.is.
Helstu verkefni eru:
Kennsla í spænsku
Að skapa hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur
Þátttaka í faglegu starfi og starfsþróun með stöðugar umbætur í skólastarfi að leiðarljósi
Hæfniskröfur
Spænskukennari skal uppfylla kröfur um menntun og hæfni kennara og hafa leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari
Spænskukennari skal hafa lokið háskólagráðu í viðkomandi grein eða sambærilegu námi.
Reynsla af kennslu eða starfstengdri leiðsögn er æskileg
Tölvufærni er nauðsynleg
Góðir samstarfshæfileikar, rík þjónustulund og áhugi á að vinna með ungu fólki
Faglegur metnaður, góðir skipulagshæfileikar og frumkvæði
Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í samstarfi við aðra
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem ríkið hefur gert við félag framhaldsskólakennara og stofnanasamningi FÍV.
Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið. Einnig skulu fylgja leyfisbréf, prófskírteini. Tilgreina skal meðmælendur.
Starfshlutfall er 25-70%
Umsóknarfrestur er til og með 21.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
Upplýsingar um starf
Starf
Spænskukennari
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
25-70%
Starf skráð
11.08.2026
Umsóknarfrestur
21.08.2026