
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
77%
Starf skráð
19.06.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026
Doktorsnemi við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild
Laust er til umsóknar 77% starf doktorsnema við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands með sérhæfingu í læknisfræðilegri myndgreiningu. Starfið er styrkt til þriggja ára af Doktorsstyrkjasjóði Háskóla Íslands.
Verkefnið miðar að því að nota ómun með skuggaefni (contrast enhanced ultrasound) og nýlega aðferð sem nýtir skuggaefnið til að meta þrýsting (subharmonic aided pressure estimation: SHAPE) til að meta og kortleggja þrýsting í líkamanum og auðvelda þannig greiningu og mat á árangri meðferðar.
Leiðbeinandi er Dr. Valgerður G. Halldórsdóttir, lektor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild. Rannsóknarhópurinn sérhæfir sig í klínískri ómun og starfar náið með rannsóknarhópum í Bandaríkjunum að þróun SHAPE aðferðarinnar og hefur beitt henni á mismunandi svæði líkamans.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining á sónarmyndum og gögnum
Þróun nýrra rannsóknaviðmiða
Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi við virta rannsóknarhópa á sviði ómunar og læknisfræðilegrar myndgreiningar
Miðlun á rannsóknarniðurstöðum svo sem skrif fræðigreina og kynningar á innlendum og alþjóðlegum ráðstefnum
Skýrslugerð til kynningar á rannsóknarvinnu í samvinnu við leiðbeinanda
Hæfniskröfur
Meistaragráða í tengdum greinum, þ.m.t. læknisfræðilegri verkfræði, rafmagns- og tölvuverkfræði, tölvunarfræði eða læknisfræðilegri eðlisfræði. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.
Kunnátta í forritun, merkjafræði, læknisfræðilegri myndvinnslu og gagnaúrvinnslu er æskileg.
Reynsla á læknisfræðilegri notkun ómunar er æskileg.
Reynsla á ómun með skuggaefni er æskileg.
Færni í mannlegum samskiptum.
Enskukunnátta bæði í rituðu og töluðu máli.
Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af deild.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Áætlað er að starfið hefjist ekki seinna en 1. desember 2026.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá (viðeigandi starfsreynsla, forritunarkunnátta og birtingar ef við á).
Greinagerð yfir rannsóknaáhuga og styrkleika auk rannsóknaryfirlýsingar sem útskýrir af hverju viðkomandi vill taka þátt og hvað hann getur lagt til verkefnisins.
Kynningarbréf
Afrit af prófskírteinum (BSc og MSc) ásamt upplýsingum um námskeið og einkunnir.
Stafrænt afrit af meistararitgerð (á ensku ef unnt er) og/eða aðrar birtingar sem umsækjandi hefur skrifað.
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila og tengsl þeirra við umsækjanda.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 77%
Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
77%
Starf skráð
19.06.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026