Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn á Ísafirði

Upplýsingar um starf

Starf

Skólafulltrúi - 75-100% starf

Staðsetning

Vestfirðir

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

07.07.2026

Umsóknarfrestur

17.07.2026

Skólafulltrúi - 75-100% starf

Menntaskólinn á Ísafirði er framsækinn framhaldsskóli. Skólinn býður upp á fjölbreytt nám í bók-, list-, verk- og starfsnámi og á starfsbraut. Í skólanum er kennt í stað-, dreif- og fjarnámi. Um 50 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru tæplega 600. Skólinn hefur það að markmiði að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarnám. Gildi skólans eru virðing, metnaður og vellíðan.

Á heimasíðu skólans, www.misa.is er að finna ýmsar upplýsingar um skólann og skólastarfið sem og gæðahandbók skólans en skólinn hefur fengið ISO-9001 gæðavottun . Skólinn hefur sömuleiðis fengið ÍST 85:2012 jafnlaunavottun. Skólinn hefur fengið viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndarstofnun í Stofnun ársins og árið 2025 lenti skólinn í 3. sæti í flokki meðalstórra stofnana.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skólafulltrúi:

  • starfar eftir starfslýsingu skólafulltrúa sem finna má í gæðahandbók skólans

  • ber ábyrgð á rekstri skrifstofu MÍ

  • sinnir þjónustu og upplýsingagjöf við nemendur og aðra aðila sem leita í afgreiðslu skólans

  • sér um útgáfu vottorða og skírteina

  • tekur á móti veikindatilkynningum nemenda og starfsfólks í INNU

  • setur inn upplýsingar á upplýsingaskjá skólans og aðstoðar verkefnastjóra við utanumhald með heimasíðu

  • aðstoðar notendur við vinnslu í skjalakerfinu GoPro og annast skjölun og frágang á gögnum

  • aðstoðar nemendur á bókasafni s.s.varðandi útlán og skil, upplýsingaleit, uppröðun í hillur o.fl.

  • leggur á skólagjöld og heimavistargjöld í upphafi annar og sér um skráningu í Tekjubókhald ríkisins (TBR) í samstarfi við fjármálastjóra

  • lagar kaffi og sinnir frágang á kaffistofu starfsfólks í samstarfi við umsjónarmanni fasteigna

  • annast önnur verkefni sem honum eru falin og samkomulag er um

  • vinnur eftir vottuðu gæðakerfi skólans

Hæfniskröfur

Leitað er að einstaklingi sem er fær í samskiptum, hefur áhuga á fjölbreyttu starfi og fellur vel að aðstæðum og þörfum skólans.

Skólafulltrúi er aðstoðarmaður skólastjórnenda í daglegri umsýslu skólans og vinnur náið með stjórnendum, starfsfólki og nemendum skólans. Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með fólki, er skipulagður og getur unnið sjálfstætt í fjölbreytilegu umhverfi.

Skólafulltrúi skal hafa:

  • Stúdentspróf eða annað lokapróf á framhaldsskólastigi

  • Reynslu af sambærilegu starfi og/eða skrifstofustörfum

  • Reynsla af vinnu með ungu fólki

  • Þjónustulund og jákvæða framkomu

  • Faglegan metnað, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð

  • Samskiptafærni og hæfni til að starfa með öðrum sem og að vinna sjálfstætt

  • Góða færni í íslensku og ensku

  • Reynsla af skjalavörslu og/eða störfum á bókasafni er kostur

  • Reynslu og hæfni í notkun upplýsingatækni, s.s. Office365,. Reynsla af TBR er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Ekki er um starf án staðsetningar að ræða.

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil, afrit af prófskírteinum ásamt stuttu kynningarbréfi.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Einungis er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef Starfatorgs. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin. Áskilinn er réttur til að nýta umsóknina í 6 mánuði frá ráðningu.

Starfshlutfall er 75-100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Heiðrún Tryggvadóttir

skólameistari

Tölvupóstur: heidrun@misa.is

Sími: 450 4400 og 849 8815

Dóróthea Margrét Einarsdóttir

aðstoðarskólameistari

Tölvupóstur: dorothea@misa.is

Sími: 450 4400

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn á Ísafirði

Upplýsingar um starf

Starf

Skólafulltrúi - 75-100% starf

Staðsetning

Vestfirðir

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

07.07.2026

Umsóknarfrestur

17.07.2026