Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsfólk í aðhlynningu og býtibúr HSN Dalvík-Fjallabyggð

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

30-100%

Starf skráð

21.07.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026

Starfsfólk í aðhlynningu og býtibúr HSN Dalvík-Fjallabyggð

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Dalvík-Fjallabyggð leitar eftir jákvæðum, áreiðanlegum og þjónustulunduðum einstaklingum til starfa í aðhlynningu og í býtibúr við hjúkrunar- og sjúkrasvið á Siglufirði. Um er að ræða vaktavinnu á heimili þar sem rík áhersla er lögð á hlýja, faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu. Ráðningarhlutfall er 30-100%. . Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

VIð leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fólki, hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum, ríka samskiptahæfni og vinnur vel bæði sjálfstætt og í teymi.

Á HSN Dalvík-Fjallabyggð starfar samhentur og öflugur hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu. Við leggjum áherslu á vellíðan í vinnu, jákvætt starfsumhverfi og að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hér gefst tækifæri til að starfa í nánu og fjölskylduvænu samfélagi þar sem stutt er í fjölbreytta útivist og góð lífsgæði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn aðhlynningarstörf og stuðningur við íbúa í samstarfi við fagaðila

Verkefni í býtibúri tengd undirbúningi og frágangi máltíða

Þátttaka í teymisvinnu

Frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri deildarinnar

Þvottur og skyld störf, móttaka og frágangur á þvotti

Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

Frumkvæði, sveigjanleiki í starfi og sjálfstæð vinnubrögð

Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund

Reynsla úr sambærilegu starfi er kostur en ekki skilyrði

Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi

Góð íslensku- og/eða enskukunnátta

Gott orðspor og hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 30-100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Margrét Gylfadóttir

Tölvupóstur: kristin.m.gylfadottir@hsn.is

Sími: 4324300

Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir

Tölvupóstur: sylvia.dogg.hjorleifsdottir@hsn.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsfólk í aðhlynningu og býtibúr HSN Dalvík-Fjallabyggð

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

30-100%

Starf skráð

21.07.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026