
Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri klínísks námsmats og alþjóðamála í Hjúkrunarfræðideild
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
04.08.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026
Verkefnastjóri klínísks námsmats og alþjóðamála í Hjúkrunarfræðideild
Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 50% starf verkefnastjóra klínísks námsmats og alþjóðamála í hjúkrunarfræðideild. Starfið er tímabundið til tveggja ára. Starfið heyrir undir forseta hjúkrunarfræðideildar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á PebblePad (PP), rafrænu frammistöðumatskerfi nemenda í klínísku námi fyrir hönd hjúkrunarfræðideildar. Setur m.a. upp námskeið í PP fyrir hvert misseri og uppfærir skjöl í námskeiðum í samvinnu við umsjónarkennara námskeiða.
Vinnur með sérfræðingum kennslumiðstöðvar að þróun rafræns frammistöðumats.
Ber ábyrgð á handbók um klínískt nám í hjúkrunarfræði við HA, reglulegri endurskoðun hennar og útgáfu hennar.
Vinnur að undirbúningi skiptináms nemenda frá samstarfsskólum HA erlendis sem óska eftir skiptinámi til Íslands.
Vinnur með verkefnastjóra alþjóðamála að móttöku á erlendum nemendum.
Er fulltrúi hjúkrunarfræðideildar í samstarfi HA í norrænum samstarfsnetum innan Nordplus (Nordkvist/Nordlink).
Hæfniskröfur
Háskólapróf í hjúkrunarfræði er krafist.
Æskilegt er að verkefnastjóri hafi eitthvað af eftirfarandi: námskeið í klínískri leiðsögn, framhaldsmenntun á sviði kennsluréttinda frá viðurkenndri stofnun, diplómapróf á sínu sérsviði eða meistarapróf.
Starfið gerir kröfu til hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæðra vinnubragða og skipulagshæfileika, víðtækrar reynslu í tölvunotkun og ábyrgðarkenndar.
A.m.k. tveggja ára starfsreynsla og góð reynsla og þekking af klínískri hjúkrun á sjúkrastofnun er nauðsynleg svo og þekking og reynsla af kennslu.
Góð færni í íslensku og ensku er nauðsynleg.
Færni í einu skandinavísku tungumáli er æskileg.
Umsókn skal fylgja:
Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.
Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins.
Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.
Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri klínísks námsmats og alþjóðamála í Hjúkrunarfræðideild
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
04.08.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026