Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
-70%
Starf skráð
15.07.2026
Umsóknarfrestur
27.07.2026
Hjúkrunarfræðingur á barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings við barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Um er að ræða 70% ótímabundna stöðu þar sem unnið er í vaktavinnu á þrískiptum vöktum. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri er eina barnadeild landsins utan höfuðborgarsvæðisins og skiptist í legudeild, dagdeild, göngudeild og hágæslu fyrir nýbura. Barnadeild sinnir börnum og unglingum frá fæðingu til 18 ára aldurs.
Ef þú hefur áhuga á barnahjúkrun þá er þetta tækifæri fyrir þig
Frábært tækifæri á góðum vinnustað þar sem starfsumhverfið er fjölbreytt, spennandi og lærdómsríkt.
Næsti yfirmaður er Aðalheiður Guðmundsdóttir deildarstjóri á barnadeild.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum
Unnið samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar
Fjölbreytt og gefandi verkefni í góðu starfsumhverfi
Vera virkur þátttakandi í þróun og umbótum í starfsemi deildarinnar
Góð handleiðsla frá reyndum hjúkrunarfræðingum
Hæfniskröfur
Fullgilt hjúkrunarpróf og gilt íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
Þekking og reynsla af barnahjúkrun er skilyrði
Góð samskipta hæfni, jákvætt viðhorf og frumkvæði
Sjálfstæði i vinnubrögðum sem og færni til að starfa í teymi
Faglegur metnaður og áhugi
Góð íslenskukunnátta
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er -70%
Umsóknarfrestur er til og með 27.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
-70%
Starf skráð
15.07.2026
Umsóknarfrestur
27.07.2026