
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Fagaðili í geðheilsuteymi barna á HSN
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
22.06.2026
Umsóknarfrestur
02.07.2026
Fagaðili í geðheilsuteymi barna á HSN
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) leitar að drífandi og metnaðarfullum fagaðila til starfa í Geðheilsuteymi barna, ss. félagsráðgjafa, sálfræðingi eða annarri fagstétt. Við óskum eftir jákvæðum einstakling sem hefur áhuga á þverfaglegu teymisstarfi og þjónustu við fjölbreyttan hóp skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra. Mikil áhersla er lögð á samvinnu í teyminu og gott samstarf við börn, ungmenni, fjölskyldur og önnur þjónustukerfi í nærumhverfi. Starfið er krefjandi, fjölbreytt og gefandi og býður upp á góð tækifæri til faglegrar þróunar.
Geðheilsuteymið veitir 2. stigs geðheilbrigðisþjónustu sem sinnir börnum með geðrænan vanda sem þurfa meiri þjónustu en hægt er að veita í fyrstu línu heilsugæslunnar. Teymið er einnig ráðgefandi í bráðamálum. Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfstöðvum HSN.
Starfið er fjölskylduvænt og býður upp á sveigjanleika sem styður við gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í uppbyggingu á geðheilbrigðisþjónustu við börn á þjónustusvæði HSN
Fræðsla, ráðgjöf og meðferð fyrir skjólstæðinga geðheilsuteymis, aðstandendur þeirra
Tengill í málefnum skjólstæðinga geðheilsuteymis
Frekari uppbygging gagnreyndra meðferðarúrræða í samráði við aðra starfsmenn teymis
Samvinna við aðrar fagstéttir¿
Samvinna við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur svo sem félags-, skóla- og barnaverndarþjónustur
Stuðla að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
Hæfniskröfur
Heilbrigðisstarfsmaður með háskólamenntun og löggildingu og réttindi til starfa á Íslandi
Jákvæð reynsla af vinnu í þverfaglegu teymi er kostur
Greinagóð þekking á algengustu geðröskunum barna
Þekking á birtingarmyndum áfalla, félagslegra og geðrænna erfiðleika hjá börnum og unglingum er kostur
Þekking á frávikum í taugaþroska í samspili við geðræna erfiðleika er kostur
Reynsla af greiningu og gagnreyndri meðferð við geðröskunum barna
Reynsla af fjölskylduvinnu er kostur
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Jákvæðni, lausnamiðuð hugsun og hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður
Frumkvæði, áhugi og metnaður til að ná árangri
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Góð, almenn tölvukunnátta
Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
HSN hefur hlotið jafnlaunavottun og fengið heimild til að nota jafnlaunamerki Jafnréttisstofu. Gildi okkar eru Fagmennska - Samvinna - Virðing.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Alice Harpa Björgvinsdóttir
forstöðumaður sálfélagslegra þjónustu
Tölvupóstur: alice.harpa.bjorgvinsdottir@hsn.is
Sími: 432 4970

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Fagaðili í geðheilsuteymi barna á HSN
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
22.06.2026
Umsóknarfrestur
02.07.2026