Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Snæfell­inga

Upplýsingar um starf

Starf

Stuðningsfulltrúi við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

12.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026

Stuðningsfulltrúi við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum stuðningsfulltrúa til starfa á starfsbraut FSN. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf þar sem lögð er áhersla á að styðja nemendur í námi og daglegu skólastarfi með það að markmiði að efla færni, sjálfstæði og þátttöku.

Helstu verkefni og ábyrgð

Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við deildarastjóra og kennara við að veita nemendum einstaklingsmiðaðan stuðning, bæði námslega og félagslega. Verkefnin eru breytileg og fela meðal annars í sér að:

  • aðstoða nemendur við nám og verkefnavinnu

  • styðja nemendur í félagslegum samskiptum og daglegum athöfnum

  • veita stuðning í frímínútum og í hádegishléum eftir þörfum

  • skipuleggja og aðlaga vinnu sína út frá þörfum nemanda í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • stúdentspróf, hafa lokið námi stuðningsfulltrúa eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi

  • góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • frumkvæði, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileiki

  • hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Ráðið er í stöðuna frá 15.ágúst 2026 til 15.maí 2027..

Heimasíðu skólans má finna hér: http://www.fsn.is/

Sameyki Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. is is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hrafnhildur Hallvarðsdóttir

Tölvupóstur: hrafnhildur@fsn.is

Sími: 8650424

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Snæfell­inga

Upplýsingar um starf

Starf

Stuðningsfulltrúi við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

12.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026