Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður á bókasafn

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026

Starfsmaður á bókasafn

Menntaskólinn á Akureyri óskar eftir að ráða starfsmann á bókasafn í 100% starfshlutfall. Um er að ræða tímabundið starf fram að áramótum með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn afgreiðsla, útlán og skil, röðun í hillur, aðstoð við upplýsinga- og heimildaleitir.

  • Sala á námsefni

  • Símsvörun

  • Viðhald á safnakosti. Þrif á hillum, grisjun og rukkun

  • Umsjón með lessal / bókasafni

  • Ábyrgð og eftirlit með búnaði safnsins og tækjum

  • Aðstoða við notkun á upplýsingatækni í samvinnu við UT - ráðgjafa.

  • Önnur verkefni í samráði við skólameistara

Hæfniskröfur

  • Kostur að þekkja til hugbúnaðar og tækja sem er notaður í skólaumhverfi

  • Búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum og vera með góða þjónustulund

  • Hafa góða skipulagshæfileika og hugsa í lausnum

  • Að geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði

  • Góð tölvukunnátta, íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um nám og starfsferil, afrit af prófskírteinum ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið. Sakavottorð þarf að fylgja umsókn.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Einungis er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef Starfatorgs.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Karl Frímannsson

skólameistari

Tölvupóstur: karl@ma.is

Sími: 862-8754

Þjónustuaðili

Mennta­skólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður á bókasafn

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026