
Þjónustuaðili
Veðurstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður fasteigna hjá Veðurstofu Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.07.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026
Umsjónarmaður fasteigna hjá Veðurstofu Íslands
Veðurstofa Íslands auglýsir eftir umsjónarmanni fasteigna. Leitað er að vandvirkum, þjónustulunduðum og úrræðagóðum einstaklingi sem hefur góða þekkingu á rekstri og viðhaldi húsnæðis.
Starf umsjónarmanns fasteigna tilheyrir fjármála- og rekstrarsviði Veðurstofu Íslands og gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri stofnunarinnar. Umsjónarmaðurinn ber meðal annars ábyrgð á umsjón fasteigna, lóða og aðbúnaði og starfsaðstöðu starfsfólks og tryggir að húsnæði og innviðir styðji sem best við fjölbreytta og mikilvæga starfsemi Veðurstofunnar.
Húsnæði Veðurstofunnar á höfuðborgarsvæðinu samanstendur af þremur byggingum með um 3600 m². skrifstofurými, kaffistofum, mötuneyti, fjölmörgum fundarrýmum, sérhæfðum tækjarýmum auk 1000 m² verkstæðis. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starfsumhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg umsjón og eftirlit með húsnæði og aðstöðu stofnunarinnar þar með talið lóðum, sorphirðu og snjómokstri.
Almennt og minniháttar viðhald fasteigna, húsbúnaðar ásamt uppsetningu á starfsaðstöðu.
Umsjón með tæknikerfum húsnæðis, svo sem loftræsti-, og rafmagnskerfum auk þátttöku í öryggis- og aðgangsstýringateymi.
Samskipti við þjónustuaðila, iðnaðarmenn, verktaka og aðra sem koma að rekstri fasteigna hjá ríkinu.
Aðkoma að gerð og eftirfylgni viðhalds- og framkvæmdaáætlunar í samstarfi við fagstjóra reksturs.
Aðkoma að gæðamálum, svo sem áhættumati og gerð viðbragðsáætlana vegna húsnæðis.
Önnur tilfallandi verkefni á sviði fasteigna og reksturs.
Hæfniskröfur
Iðnmenntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf eða tæknimenntun s.s. á sviði byggingartæknifræði er kostur.
Farsæl reynsla sem nýtist við rekstur og viðhald fasteigna
Rík þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
Sjálfstæði, frumkvæði, nákvæmni og vönduð vinnubrögð
Góð almenn tölvukunnátta
Góð færni í íslensku og ensku
Í gildum Veðurstofunnar er lögð áhersla á að vera áreiðanleg, samvinnufús og hugvitsöm. Ráðningar taka mið af þessum gildum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um starfið.
Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Vísindi á vakt
Á Veðurstofu Íslands starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fólks við að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins gegn náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga. Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða. Sérfræðingar stofnunarinnar eru leiðandi á sínu sviði og styðja viðbrögð samfélagsins vegna náttúruvár og áhrifa loftslagsbreytinga með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi.
Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 170 manns. Auk þess starfa um 50 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.vedur.is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Veðurstofa Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður fasteigna hjá Veðurstofu Íslands
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
20.07.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026