
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi við rannsóknarverkefnið Stjórnkerfi nýtingar vatns í lágtekjuríkjum Afríku
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.08.2026
Umsóknarfrestur
04.09.2026
Doktorsnemi við rannsóknarverkefnið Stjórnkerfi nýtingar vatns í lágtekjuríkjum Afríku
Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við rannsóknarverkefnið Stjórnkerfi nýtingar vatns í lágtekjuríkjum Afríku. Verkefnið er styrkt af utanríkisráðuneytinu í gegnum doktorsstyrkjasjóð Háskóla Íslands til 3ja ára og er innan þverfræðilegrar námsbrautar í Umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands (með möguleika á að vera doktorsnemi á Verkfræði- og náttúruvísindasviði eða Félagsvísindasviði).
Doktorsneminn mun vinna með þverfræðilegri doktorsnefnd með þekkingu á sviði auðlindastjórnunar, þróunarfræði, hagfræði, félagsvísindum og stjórnkerfa vatns. Starfið veitir tækifæri til að taka þátt í framsæknum rannsóknum á því brýna viðfangsefni að auka þekkingu á stjórnun nýtingar vatns lágtekjuríkjum Afríku, með megináherslu á þau lönd þar sem Ísland er með tvíhliða þróunarsamvinnu eða Úganda, Malaví og Sierra Leóne. Gert er ráð fyrir að doktorsneminn hafi starfsaðstöðu við HÍ en sinni nauðsynlegri gagnasöfnun í samstarfsríkjum Íslands í Afríku í samstarfi við doktorsnefnd, með áherslu á Úganda.
Vatn er náttúruauðlind sem er undirstaða alls lífs og er aðgangur að nægu og hreinu vatni til drykkjar og matseldar grunnþörf fólks og forsenda heilbrigðis og velsældar. Vatn er jafnframt mikilvægt fyrir margar atvinnugreinar eins og í fiskvinnslu og forsenda landbúnaðar.
Mörg lágtekjuríki Afríku glíma við margvíslegar áskoranir varðandi stjórnun á aðgengi, framboði og gæðum á vatni til að mæta þörfum samfélagsins, ekki síst í dreifbýli. Vatn er mikilvægt áherslumál í þróunarsamvinnu Íslands, bæði sem hluti af tvíhliða samvinnu í samstarfsríkjum; sem stuðningur við fjölþjóðasamvinnu og einnig á vegum íslenskra félagasamtaka í Afríku. Málefni vatns hafa einnig fengið mjög aukna athygli í samhengi loftslagsbreytinga.
Þetta rannsóknarverkefni hefur áherslu á að auka þekkingu á stjórnkerfum vatnsauðlinda. Afríkuríki takast á við margvíslegar áskoranir við að byggja og þróa sjálfbær, skilvirk og réttlát stjórnkerfi vatns í dreifbýli. Vatn sem auðlind hefur hins vegar marga eiginleika sem gera stjórnkerfi nýtingar þess ólík öðrum náttúruauðlindum. Gera má ráð fyrir að niðurstöður þessara rannsókna styðji stjórnvöld í viðkomandi ríkum við stefnumótun og framkvæmd stjórnunar vatnsauðlinda þeirra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í þverfræðilegu rannsóknarverkefni tengdu þróunarsamvinnu, sem hefur að markmiði að skilja hvernig efla megi stjórnkerfi nýtingar vatns í lágtekjuríkum Afríku.
Greiningar með þverfræðilegum rannsóknaaðferðum hverjar séu helstu áskoranir við stjórnkerfi nýtingar vatnsauðlinda í dreifbýli lágtekjuríkjum Afríku, með áherslu á neysluvatn fyrir heimili, fyrir skóla og aðrar stofnanir og til notkunar í atvinnustarfsemi, sérstaklega fiskvinnslu og landbúnaði.
Stefnugreiningar á núverandi stefnum og aðgerðaáætlunum um stjórnkerfum vatns í völdum löndum Afríku sunnan Sahara.
Greiningar á ólíkum stjórnkerfum nýtingar vatns, með tillit til sjálfbærni, skilvirkni og réttlætis.
Vinna að birtingu vísindagreina og kynningum á akademískum rannsóknum og niðurstöðum.
Miðlun niðurstaðna til stefnumótenda og styðja við upplýsta ákvörðunartöku og stefnumótun á samhengi stjórnkerfa vatnsauðlinda.
Hæfniskröfur
Meistaragráða af sviði tengdu viðfangsefni rannsóknanna, svo sem á sviði umhverfis- og/eða auðlindafræða, félagsvísinda, eða þróunarfræða eða á öðru sviði sem umsækjandi telur tengjast viðfangsefninu. Meistaragráðu skal vera lokið þegar starf hefst.
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
Góð samskiptahæfni.
Góð rithæfni.
Þekking á þverfræðilegum rannsóknaraðferðum, sérstaklega eigindlegum og stefnugreiningum er kostur.
Þekking á þróunarsamvinnu Íslands í Afríku er kostur.
Reynsla af verkefnum eða starfi í lágtekjuríkjum Afríku er kostur.
Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
Íslenskukunnátta er kostur.
Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um í þverfræðilegt doktorsnám í Umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 01.11.2026 eða samkvæmt samkomulagi.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn á íslensku eða ensku:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins (hámark 2 bls.)
Afrit af prófskírteinum og námsyfirliti (grunnnám og meistaranám)
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi við rannsóknarverkefnið Stjórnkerfi nýtingar vatns í lágtekjuríkjum Afríku
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.08.2026
Umsóknarfrestur
04.09.2026