Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hönnunarstjórn jarðganga
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
14.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026
Sérfræðingur í hönnunarstjórn jarðganga
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hönnun og hönnunarstjórn jarðganga á hönnunardeild Vegagerðarinnar.
Á vegakerfi Íslands eru 13 jarðgöng, samtals 64,8 km., staðsett víðsvegar um landið.Á hönnunardeild vinna um 15 sérfræðingar við verkefnis- og hönnunarstjórnun, hönnun vega, jarðganga og brúa, mat á umhverfisáhrifum, vatnafarsgreiningar ásamt gerð kostnaðaráætlana, verk- og útboðslýsinga. Starfsstöðvar eru á Akureyri og í Garðabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stýring hönnunar nýrra jarðganga, aðstoð við áætlanagerð, undirbúning og framkvæmd jarðgangaverkefna.
Ráðgjöf varðandi viðhaldsaðgerðir í jarðgöngum.
Felur í sér að sinna stórum verkefnum á höfuðborgarsvæðinu.
Starfið felur í sér hvorttveggja hönnunarstýringu jarðganga á landsbyggðinni og stokkalausnum í þéttbýli.
Hæfniskröfur
Verk- eða tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf æskilegt.
Reynsla af hönnun eða hönnunarstjórn samgöngumannvirkja eða jarðganga æskileg.
Leiðtogafærni og nýsköpunarhugsun.
Framúrskarandi samskiptafærni og lausnamiðuð nálgun.
Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður.
Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu.
Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni.
Öryggisvitund.
Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli, kunnátta í norðurlandamáli kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkfræðingafélag Íslands hafa gert.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í hönnunarstjórn jarðganga
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
14.08.2026
Umsóknarfrestur
31.08.2026