
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Læknir með lækningaleyfi, tímabundið starf á barna- og unglingageðdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.08.2026
Umsóknarfrestur
21.08.2026
Læknir með lækningaleyfi, tímabundið starf á barna- og unglingageðdeild
Laus er til umsóknar staða læknis með lækningaleyfi á barna- og unglingageðdeild (BUGL). Um tímabundið starf í sex mánuði er að ræða. Starfið veitist frá 1.september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Unnið er í náinni samvinnu við sérfræðilækna í barna- og unglingageðlækningum og felur starfið í sér þverfaglega teymisvinnu með öðrum sérgreinum læknisfræðinnar, s.s. barnalækningum og bráðalækningum sem og samvinnu við aðrar starfsstéttir sem sinna sjúklingum á BUGL.
Starfið nýtist afar vel þeim sem hafa hug á frekara sérnámi í bæði barna- og unglingageðlækningum og barnalækningum. Einnig er lagður grunnur að klínískri færni þar sem starfið á deildinni er mjög fjölbreytt.
Starfsumhverfið á deildum BUGL er lærdómsmiðað. Starfið er mjög fjölbreytt og mun læknirinn fá sérstaka starfslýsingu og skipulagða handleiðslu sérfræðilæknis eða reyndra sérnámslækna. Fagleg árvekni og endurskoðun klínískra leiðbeininga og verkferla er hluti af fagmennsku starfseininganna. Vinnulagið á deildinni byggir á samvinnu ólíkra starfsstétta með það að markmiði að gera meðferð og þjónustu, framsækna og skilvirka.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meðferð og þjónusta við sjúklinga í göngudeild BUGL
Þátttaka í greiningarteymi og meðferðarteymum
Vinna fer fram í transteymi, átröskunarteymi og taugateymi BUGL
Þátttaka í þverfaglegri samvinnu og samráðsfundum
Hæfniskröfur
Almennt íslenskt lækningaleyfi
Sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi lokið við upphaf starfs
Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
Öguð vinnubrögð
Áhugi á að bæta sig í faglegu klínísku umhverfi
Gott vald á íslensku máli
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf
Mögulega umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Starfsferilsskrá
Vottað afrit af prófskírteini og starfsleyfi
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum eftir því sem við á. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, læknir með lækningaleyfi
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Dís Óskarsdóttir
Tölvupóstur: margdis@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Læknir með lækningaleyfi, tímabundið starf á barna- og unglingageðdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
11.08.2026
Umsóknarfrestur
21.08.2026