
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunardeildarstjóri á nýrri bráðamatsdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.07.2026
Umsóknarfrestur
20.07.2026
Hjúkrunardeildarstjóri á nýrri bráðamatsdeild
Laus er til umsóknar staða hjúkrunardeildarstjóra á nýrri bráðamatsdeild lyflækninga á Landspítala. Deildin opnar 1. september næstkomandi í nýju húsnæði og er starfið laust frá þeim tíma eða eftir samkomulagi.
Bráðaþjónusta Landspítala er í endurskoðun og þróun og ný bráðamatsdeild mun sinna fjölbreyttum hópi sjúklinga með bráð veikindi, greina og hefja meðferð snemma með það að markmiði að sjúklingar komist fyrr heim eða í viðeigandi úrræði. Áhersla er á árangursríka teymisvinnu, notendamiðaða nálgun, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við aðra stjórnendur og starfsfólk. Mikilvæg samvinna með allri bráðaþjónustu og þátttaka í að þróa ný úrræði og bæta ferla og aðstöðu sjúklinga og starfsfólks.
Leitað er eftir kraftmiklum hjúkrunarfræðingi með reynslu af stjórnun og hæfni til að leiða árangursríka þjónustu við sjúklinga, stýra teymisvinnu margra faghópa, daglegum rekstri deildar og er hefur forystu um fagleg málefni deildarinnar. Hjúkrunardeildarstjóri starfar í nánu samstarfi við forstöðuhjúkrunarfræðing, yfirlækni deildar og aðra stjórnendur þeirra fagstétta sem starfa á deildinni og innan bráðaþjónustunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði
Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækna og forstöðufólk bráða-, lyflækninga og endurhæfingaþjónustuþjónustu
Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi
Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan bráðaþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur
Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
Hæfni til að leiða teymi
Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál
Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, deildarstjóri, stjórnunarstarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunardeildarstjóri á nýrri bráðamatsdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.07.2026
Umsóknarfrestur
20.07.2026