Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Iðjuþjálfi á geðdeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

13.08.2026

Umsóknarfrestur

28.08.2026

Iðjuþjálfi á geðdeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Laus er til umsóknar 80-100% staða iðjuþjálfa á geðsviði Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Um er að ræða dagvinnustöðu frá 1. október eða eftir samkomulagi. Við leitum að öflugum liðsmanni í fjölbreytt og lærdómsríkt starfsumhverfi þar sem tækifæri er til að takast á við margbreytileg og spennandi verkefni í þverfaglegum teymum ásamt því að hafa áhrif á áframhaldandi uppbyggingu iðjuþjálfunar á geðsviði SAk.

Á dag- og göngudeildinni vinnur þú með skjólstæðingum 18 ára og eldri og færð tækifæri til að byggja upp meðferðasamband og fylgja fólki eftir í bataferli þess. Starfið er fjölbreytt, gefandi og krefjandi og gefur þér svigrúm til að nýta fagþekkingu þína til fulls. Jafnframt færðu tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi þróun og umbótastarfi deildarinnar, þar sem unnið er markvisst að því að efla þjónustuna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mat og meðferðavinna skjólstæðinga og þjónusta við þá í formi einstaklings- og hópameðferðar

  • Samvinna við skjólstæðinga, fjölskyldur og samstarfsfólk þvert á faggreinar með það að markmiði að veita sem besta þjónustu við viðkomandi og/eða fjölskyldu hans

  • Samstarf við aðrar starfstéttir og þáttaka í teymisvinnu

  • Ábyrgð á þróun starfs og gæðum þjónustu gagnvart skjólstæðingum

  • Þáttaka í starfsþjálfun og handleiðslu nema og nýrra starfsmanna ásamt miðlun fræðslu

  • Þáttaka í þróun sinnar einingar hvað varðar skipulag, stefnumótun og framkvæmd starfseminnar

  • Fagleg tengsl og samráð við samstarfsaðila innan og utan stofnunar

  • Heldur utan um skýrslur og skráir upplýsingar í þar til gerð sjúkraskrárkerfi um meðferð skjólstæðinga, tryggir að allar upplýsingar séu skráðar með viðeigandi lögum og reglum og árangursmetur þjónustuna og þróun hennar

  • Verkleg kennsla nema í iðjuþjálfun fer fram á Sjúkrahúsinu á Akureyri

Hæfniskröfur

  • BSc. próf í iðjuþjálfun og löggildingu til að starfa sem slíkur

  • Reynsla af vinnu á geðdeild og reynsla af teymisvinnu er kostur

  • Góð hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum og góð færni til samvinnu

  • Skipulagshæfni, frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð

  • Fagleg þekking og hæfni til nýsköpunar og innleiðingar nýrra hugmynda og vinnubragða í þjónustu, í samvinnu við faglegan yfirmann

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ragnheiður R Magnúsdóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: rrm0109@sak.is

Sími: 463-0100

Gestur Guðrúnarson

Þjónustustjóri

Tölvupóstur: ggu0125@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Iðjuþjálfi á geðdeild við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

13.08.2026

Umsóknarfrestur

28.08.2026