
Þjónustuaðili
Náttúrufræðistofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Starf í eldhúsi og móttöku
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60%
Starf skráð
06.07.2026
Umsóknarfrestur
16.07.2026
Starf í eldhúsi og móttöku
Náttúrufræðistofnun auglýsir laust til umsóknar 60% starf í eldhúsi og móttöku á starfsstöð stofnunarinnar í Garðabæ. Starfið felst í umsjón með framreiðslueldhúsi hússins ásamt innkaupum og umsjón með rafrænni móttöku og póstsendingum. Auk þess mun viðkomandi taka þátt í og aðstoða við skipulagningu viðburða og funda á vegum stofnunarinnar í samráði við yfirmann.
Leitað er að þjónustuliprum og jákvæðum einstaklingi með létta lund sem getur unnið sjálfstætt.
Starfshlutfall er 60% og vinnutími er frá kl.9:30 til 14:00 alla virka daga.
Starfið heyrir undir sviðsstjóra rekstrar og mannauðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með eldhúsi, morgunkaffi, framreiðslu og pöntun hádegisverðar ásamt frágangi
Innkaup og pantanir á kaffistofu og skrifstofu
Umsjón með sendingum til og frá stofnun
Umsjón með rafrænni móttöku
Umsjón með sameiginlegum rýmum
Aðstoð við skipulagningu viðburða og funda á vegum stofnunar í samráði við yfirmann
Tilfallandi verkefni á sviðinu að ósk sviðsstjóra eða önnur verkefni í samráði við hann
Hæfniskröfur
Almenn starfsreynsla og þekking sem nýtist í starfi.
Gild ökuréttindi
Góð samskiptafærni
Rík þjónustulund og jákvæðni
Geta til að vinna sjálfstætt eftir skipulagi vinnustaðar og tímaplani.
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Staðfest afrit prófskírteina ef við á
Upplýsingar um umsagnaraðila
Stutt kynningarbréf þar sem áhuga fyrir starfinu er lýst og tiltekið hvað umsækjandi getur lagt af mörkum til auglýstra starfsþátta
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um niðurstöðu þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Öll kyn eru hvött til að sækja um störf hjá Náttúrufræðistofnun í samræmi við jafnréttisáætlun og jafnlaunastefnu stofnunar.
Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf um miðjan ágúst.
Um Náttúrufræðistofnun
Á Náttúrufræðistofnun starfa tæplega 80 manns við rannsóknir, kortlagningu og vöktun á náttúru landsins. Starfsandi á stofnuninni er góður og er leitast við að bjóða fjölskylduvænan vinnustað. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar. Starfsstöðvar Náttúrufræðistofnunar eru sex talsins, í Garðabæ, á Akranesi, Breiðdalsvík, í Mývatnssveit, á Rifi og á Akureyri.
Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 16.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Náttúrufræðistofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Starf í eldhúsi og móttöku
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60%
Starf skráð
06.07.2026
Umsóknarfrestur
16.07.2026