
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæslan Glæsibæ - Móttökuritari
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
31.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026
Heilsugæslan Glæsibæ - Móttökuritari
Heilsugæslan Glæsibæ leitar að skemmtilegum, jákvæðum og lífsglöðum einstaklingi sem finnst gaman að taka á móti fólki í starf móttökuritara. Um er að ræða starf í lifandi umhverfi þar sem reynir á samskiptahæfni og þjónustulund viðkomandi. Ef þér finnst gaman að tala við fólk og veita framúrskarandi þjónustu þá viljum við gjarnan fá að hitta þig.
Um er að ræða 80% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. september nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar https://island.is/s/hh
Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
Uppgjör í lok dags
Afgreiðsla tímapantana
Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Nám sem nýtist í starfi
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Jákvæðni og rík þjónustulund
Reynsla af móttökuritarastarfi æskileg
Reynsla af Sögukerfi kostur
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg
Íslenskukunnátta skilyrði
Góð almenn enskukunnátta æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæslan Glæsibæ - Móttökuritari
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
31.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026