Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri í sérhæfðu ráðgjafarteymi í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.07.2026

Umsóknarfrestur

05.08.2026

Teymisstjóri í sérhæfðu ráðgjafarteymi í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu

Geðþjónusta Landspítala leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum heilbrigðismenntuðum einstaklingi með góða samskiptafærni og áhuga á að taka þátt í uppbyggingu sérhæfðs teymis sem þjónustar heilbrigðisstofnanir utan höfuðborgarsvæðisins.

Viðkomandi mun hafa umsjón með starfsemi teymisins í nánu samstarfi við stjórnendur og stuðla að öflugu samstarfi við hagsmunaaðila verkefnisins.

Teymið er staðsett í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu. Þar starfar þverfaglegur hópur heilbrigðisstarfsfólks og er núverandi starfsemi fjórþætt:

  1. Bráðamóttaka sjúklinga sem eiga við bráð geðræn veikindi að stríða

  2. Skammtíma eftirfylgd eftir komu í bráðaþjónustu

  3. Ráðgjafaþjónusta fyrir bráðamóttöku í Fossvogi

  4. Ráðgjafaþjónusta fyrir legudeildir Landspítala

Lögð er áhersla á öfluga þverfaglega teymisvinnu og stöðuga framþróun.

Um er að ræða faglega krefjandi starf á spennandi vettvangi fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í starfi. Landspítalinn er þverfaglegur vinnustaður og býður upp á líflegt starfsumhverfi.

Teymisstjóri mun verða virkur þátttakandi í mótun framtíðarsýnar teymisins í samvinnu við stjórnendur. Unnið er að fjölbreyttum umbótaverkefnum og bjóðast margvísleg tækifæri til starfsþróunar.

Ráðið er í starfið frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Byggja upp samstarf og veita ráðgjöf milli geðþjónustu Landspítala og geðheilbrigðisþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins

  • Utanumhald og yfirsýn yfir starfsemi og þjónustu ráðgjafateymisins

  • Heimsóknir á heilbrigðisstofnanir utan höfuðborgarsvæðis

  • Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla

  • Þátttaka og uppbygging á þverfaglegri teymisvinnu

  • Uppbygging fjarheilbrigðisþjónustu

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði heilbrígðisvísinda

  • Íslenskt starfsleyfi heilbrigðisstarfmanns frá Embætti Landlæknis

  • Framhaldsnám á sviði heilbrigðisvísinda er kostur

  • Þekking og reynsla af geðgreiningum og meðferð við geðvanda

  • Þekking og reynsla af því að meta þjónustuþarfir fólks með fjölþættan vanda

  • Þekking og reynsla af að vinna með aðkallandi vanda t.d. mat og viðbrögð við sjálfsvígshættu

  • Framúrskarandi samskiptafærni

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði

  • Reynsla af þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu heilbrigðisstétta æskileg

  • Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisvísindi,

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þórey Rósa Einarsdóttir

deildarstjóri bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu Landspítala

Tölvupóstur: thoreyre@landspitali.is

Júlíana Guðrún Þórðardóttir

forstöðuhjúkrunarfræðingur

Tölvupóstur: julianag@landspitali.is

Sími: 8975309

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri í sérhæfðu ráðgjafarteymi í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.07.2026

Umsóknarfrestur

05.08.2026