Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Rannsóknarlögreglumaður - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.08.2026
Umsóknarfrestur
24.08.2026
Rannsóknarlögreglumaður - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru laus til umsóknar ein staða rannsóknarlögreglumanns. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðuna frá og með 1. september 2026, eða eftir samkomulagi, með skipun í huga að sex mánaða reynslutíma loknum.
Hjá embættinu starfa rúmlega 200 manns í ólíkum og krefjandi störfum. Í fjölmennu liði lögreglunnar á Suðurnesjum býr mikill þróttur og góð þekking þar sem áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda og góð samskipti.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kveðið er á um réttindi og skyldur lögreglumanna í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Almennar upplýsingar um verksvið og ábyrgð rannsóknarlögreglumanns má finna í 9. gr. reglugerðar nr. 1051/2006, um starfsstig innan lögreglunnar.
Meðal verkefna rannsóknarlögreglumanns eru rannsóknir viðameiri og flóknari mála sem vegna eðlis krefjast aukinnar sérhæfingar og sérþekkingar.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Krafist er a.m.k. tveggja ára starfsreynslu.
Góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) er nauðsynleg. Aukin menntun og önnur reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
Færni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki, nákvæm og traust vinnubrögð og hæfni til að starfa í hóp eru mikilvægir eiginleikar. Frumkvæði, sjálfstæði og álagsþol eru einnig eiginleikar sem nýtast vel í rannsóknardeildinni. Aukin menntun og önnur reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Starfið er dagvinna með bakvöktum.
Athygli umsækjenda er vakin á heimild til að skoða sakaferil umsækjenda um starf í lögreglu en samkvæmt 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996 er mælt fyrir um að engan megi skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið með því að smella á hlekkinn hér að neðan og láta ferilskrá og kynningarbréf fylgja með sem viðhengi.
Einungis er tekið við umsóknum með þessum hætti. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Varðandi persónuverndarákvæði gagnvart umsækjendum, sjá vef lögreglunnar: https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2020/04/Persónuverndaryfirlýsing-til-umsækjenda.pdf
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Bjarney Sólveig Annelsdóttir
Yfirlögregluþjónn löggæslusviðs
Tölvupóstur: baddy@logreglan.is
Sími: 4442200
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Rannsóknarlögreglumaður - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.08.2026
Umsóknarfrestur
24.08.2026