Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við verkefnið Himnuferli til að endurheimta verðmæta málma úr jarðhitavatni

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.08.2026

Umsóknarfrestur

07.09.2026

Doktorsnemi við verkefnið Himnuferli til að endurheimta verðmæta málma úr jarðhitavatni

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands. Starfið er styrkt af Rannsóknasjóði Rannís til þriggja ára vegna verkefnisins Himnuferli til að endurheimta verðmæta málma úr jarðhitavatni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróa nýstárleg aðsogsefni og himnuaðskilnaðarferli til að endurheimta verðmæta málma (til dæmis rúbidíum, litíum) úr jarðhitavatni

  • Skoða afköst blandaðra himnukerfa

  • Framkvæma efnahagsgreiningar og líftímamat

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í umhverfisverkfræði, efnaverkfræði eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.

  • Reynsla af himnutækni eða hagnýtum efnum er kostur.

  • Sjálfstæð vinnubrögð og góð mannleg samskipti.

  • Góð færni í ritaðri og talaðri ensku.

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af deild.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi hefji störf eigi síðar en 1. janúar 2027.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Niðurstöður úr TOEFL eða IELTS

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bing Wu

Prófessor

Tölvupóstur: wubing@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við verkefnið Himnuferli til að endurheimta verðmæta málma úr jarðhitavatni

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.08.2026

Umsóknarfrestur

07.09.2026