Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar í útkallsteymi yfirsetu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

29.07.2026

Umsóknarfrestur

12.08.2026

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar í útkallsteymi yfirsetu

Ert þú fær í mannlegum samskiptum og getur laðað fram það besta í fólki?

Útkallsteymi yfirsetu á Landspítala auglýsir laus til umsóknar spennandi og þroskandi störf. Teymið sinnir yfirsetum á fjölbreyttum hópi sjúklinga með sérstakar stuðningsþarfir á almennum legudeildum Landspítala.

Við sækjumst eftir sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingum sem hafa gaman af fjölbreyttu starfsumhverfi og áhuga á fólki og jákvæðum samskiptum. Umsækjendur verða að vera tilbúnir til að starfa í teymi, vinna samkvæmt viðurkenndum verklagsferlum og fara á milli deilda spítalans eftir þörfum þjónustunnar hverju sinni. Vaktabyrðin er hófleg og unnið er á þrískiptum vöktum. Upphaf starfa er 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita einstaklingshæfða aðhlynningu og tryggja öryggi sjúklinga

  • Þátttaka í umbótastarfi og þróun þjónustunnar

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra meðferðaraðila

  • Sveigjanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Reynsla af umönnun er kostur

  • Reynsla af stuðningi við fólk með krefjandi stuðningsþarfir er kostur

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði mælti og rituðu máli

  • Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afrit af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Tungumálakunnátta: íslenska 4/5, enska 3/5

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Ráðgjafi, stuðningsfulltrúi, starfsmaður

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Hrönn Logadóttir

Tölvupóstur: gudrunhl@landspitali.is

Þórey Rósa Einarsdóttir

Tölvupóstur: thoreyre@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar í útkallsteymi yfirsetu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

29.07.2026

Umsóknarfrestur

12.08.2026