Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í þjóðfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-75%

Starf skráð

19.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026

Doktorsnemi í þjóðfræði

Laust er til umsóknar tímabundið 70-75% starf doktorsnema, við Félagsfræði-, mannfræði og þjóðfræðideild Háskóla Íslands.

Starfið er styrkt af doktorsstyrkjasjóði Háskóla Íslands til þriggja ára. Verkefni doktorsnemans er að rannsaka gerjun á heimilum og hjá smáframleiðendum sem birtingarmynd ,,alþýðlegrar örverufræði", með áherslu á tengslin á milli matarhátta, meltingar, handverks, örvera og daglegs lífs. Verkefnið byggir að hluta á rannsóknargögnum sem safnað hefur verið í öndvegisverkefninu Samlífi manna og örvera í daglega lífinu (2021-2025).

Doktorsneminn mun taka þátt í áframhaldandi þróun þess rannsóknarumhverfis sem byggst hefur í tengslum við öndvegisverkefnið og verður hluti af þverfræðilegu teymi þjóðfræðinga, líffræðinga, næringarfræðinga og matvælafræðinga við Háskóla Íslands og Matís. Verkefnið hefst á háskólaárinu 2026-2027 og verður unnið á Íslandi undir stjórn Valdimars Tr. Hafstein, prófessors í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í rannsóknarvinnu í samstarfi við leiðbeinanda ásamt þverfaglegu rannsóknarteymi

  • Eigindleg gagnaöflun og greining með viðtölum, þátttökuathugunum og úrvinnslu fyrirliggjandi rannsóknargagna

  • Miðlun rannsóknarniðurstaðna, einkum með samsettri doktorsritgerð (3 vísindagreinar í viðurkenndum fagtímaritum) en einnig með fyrirlestrum á alþjóðlegum ráðstefnum, sýningargerð og annarri kynningu meðal almennings

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í þjóðfræði eða skyldum greinum með að lágmarki fyrstu einkunn. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.

  • Hafa lokið námskeiði á meistarastigi um eigindlegar rannsóknaraðferðir.

  • Reynsla af framkvæmd og greiningu á eigindlegum rannsóknargögnum.

  • Reynsla af ritun og birtingu greina í vísindatímaritum er kostur.

  • Reynsla af sýningargerð er æskileg.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám í þjóðfræði á Félagsvísindasviði og að umsóknin sé samþykkt af Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Skilyrði er að doktorsneminn hafi búsetu á Íslandi og sinni starfinu þar á starfstímanum. Þó verður mögulegt að dveljast tímabundið verið erlendan háskóla eða rannsóknastofnun. Doktorsneminn þarf að geta sótt ráðstefnur erlendis vegna rannsóknarinnar og þarf að geta hafið störf sem fyrst og eigi síðar en 1. janúar 2027.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókninni:

  • Kynningarbréf (2-3 bls.) á ensku þar sem fram kemur hvað vekur áhuga umsækjanda á verkefninu og hvað viðkomandi hefur fram að færa við mótun og vinnslu þess.

  • Ferilskrá (2-3 bls.) á ensku þar sem fram kemur starfsreynsla, hæfni tengd verkefninu og ritaskrá ef við á.

  • Staðfest afrit af prófskírteinum (BA og MA).

  • Afrit af meistararitgerð eða rannsóknargreinum ef við á.

  • Tvö meðmælabréf og upplýsingar um hvernig nálgast megi umsagnaraðilana.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 70-75%

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Valdimar Tryggvi Hafstein

prófessor

Tölvupóstur: vth@hi.is

Halldóra F Sigurgeirsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: halldoraf@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í þjóðfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

70-75%

Starf skráð

19.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026