Þjónustuaðili
Embætti forseta Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður á Bessastöðum - hlutastarf
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
31.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026
Starfsmaður á Bessastöðum - hlutastarf
Embætti forseta Íslands auglýsir laust til umsóknar starf starfsmanns á Bessastöðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst aðstoð við staðarhaldara á Bessastöðum. Verkefni sem falla þar undir eru m.a. eldhússtörf, alhliða þrif- og heimilisstörf, móttaka gesta, undirbúningur fyrir viðburði, framreiðsla í veislum.
Starfið felur einnig í sér að sinna margvíslegum verkefnum tengdum fasteignum og landareign á Bessastöðum, jafnt utan- sem innandyra. Helstu verkefni tengd fasteignum felast í almennu eftirliti og daglegum verkefnum tengdum húsakosti, lóð og landareign á Bessastöðum.
Starfsmaðurinn getur þurft að leysa staðarhaldara af.
Hæfniskröfur
Reynsla af framreiðslustörfum, eldhús- og öðrum heimilisstörfum áskilin
Menntun á sviði framreiðslu æskileg
Rík þjónustulund, frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Gott vald á íslensku og ensku
Bílpróf
Snyrtimennska
Dugnaður og stundvísi
Sveigjanleiki í verkefnum og viðveru
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Um er að ræða 80% hlutastarf og getur vinnutími verið óreglulegur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Forsetaritari er næsti yfirmaður starfsmannsins.
Ferilskrá, kynningarbréf og upplýsingar um umsagnaraðila skulu fylgja umsókn: Sótt er um starfið á starfatorg.is.
Nánari upplýsingar um embætti forseta Íslands má finna á vefsetri þess, forseti.is.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Embætti forseta Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður á Bessastöðum - hlutastarf
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
31.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026