Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Landvörður á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs - vetrartímabil
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.07.2026
Umsóknarfrestur
04.08.2026
Landvörður á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs - vetrartímabil
Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til starfa á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Landverðir taka þátt í fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem stuðla að verndun og varðveislu náttúrunnar. Verkefni landvarða fela meðal annars í sér að efla innviði og umhirðu svæða, leiðbeina og fræða gesti um náttúru landsins og fylgjast með ástandi umhverfisins. Landverðir gegna lykilhlutverki í að fræða gesti um náttúruna og hvetja til ábyrgðar í umgengni við hana.
Starfssvæði suðaustursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs nær frá Fjallsárlóni að mörkum friðlandsins Lónsöræfum. Helsta starfsstöð landvarða er við Jökulsárlón. Veturinn er annasamur á suðaustursvæði vegna íshella- og jöklaferðamennsku.
Um er að ræða tímabundið starf til 30. apríl 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samskipti við gesti þar sem lögð er áhersla á miðlun upplýsinga og fræðslu.
Umsjón og eftirlit með starfssvæðum ásamt vöktun náttúrufars til að tryggja verndun og sjálfbæra nýtingu svæðanna.
Viðhald innviða, s.s. merking gönguleiða og umhirða svæða.
Smærri framkvæmdir og önnur tilfallandi verkefni.
Eftirlit með leyfisskyldum framkvæmdum, atvinnustarfsemi og viðburðum.
Hæfniskröfur
Landvarðaréttindi, gild ökuréttindi.
Gild réttindi í fyrstu hjálp eru kostur.
Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að miðla upplýsingum á áhrifaríkan hátt.
Sterk þjónustulund, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun við fjölbreyttar áskoranir.
Umhverfisvitund, verkkunnátta og áreiðanleiki.
Góð skipulagsfærni og hæfni til að starfa undir álagi.
Starfsreynsla á friðlýstum svæðum eða önnur reynsla sem tengist verkefnum landvarða, t.d. náttúrutúlkun er kostur.
Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur.
Góð kunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg, kunnátta í fleiri tungumálum er kostur.
Þjálfun í jöklaleiðsögn er kostur, t.d. jöklaleiðsögn 1-3 eða sambærilegt nám.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vinsamlegast látið ferilskrá og kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið fylgja með umsókninni. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu verður tekin.
Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst 2026.
Um NáttúruverndarstofnunStofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar. Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsfólks með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 16 talsins um allt land.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Anna Ragnarsdóttir Pedersen
Tölvupóstur: anna.r.pedersen@nattura.is
Charlotte Emma Jadwiga Brzeski
Tölvupóstur: charlotte.e.j.brzeski@nattura.is
Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Landvörður á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs - vetrartímabil
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.07.2026
Umsóknarfrestur
04.08.2026