Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur HSN Dalvík-Fjallabyggð

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

21.07.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026

Hjúkrunarfræðingur HSN Dalvík-Fjallabyggð

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Dalvík-Fjallabyggð óskar eftir að ráða metnaðarfulla og jákvæða hjúkrunarfræðinga til starfa. Um er að ræða annarsvegar 60% starf við heilsugæsluna á Dalvík með megináherslu á skólahjúkrun og lífsstílsmóttöku ásamt öðrum verkefnum tengt heilsugæsluhjúkrun og hinsvegar 50-100% starf við hjúkrunarheimilið Hornbrekku þar sem unnið er á tvískiptum vöktum.

Störfin bjóða upp á fjölbreytt verkefni og tækifæri til starfsþróunar í hlýlegu og uppbyggilegu umhverfi. Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Á HSN Dalvík-Fjallabyggð starfar samhentur og öflugur hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu. Við leggjum áherslu á vellíðan í vinnu, jákvætt starfsumhverfi og að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hér gefst tækifæri til að starfa í nánu og fjölskylduvænu samfélagi þar sem stutt er í fjölbreytta útivist og góð lífsgæði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almenn hjúkrun og umönnun

Stuðningur, ráðgjöf og hjúkrunarmeðferð

þátttaka í teymisvinnu, umbótaverkefnum og að vinna að góðri liðsheild

Samstarf við aðra faghópa innan stofnunarinnar

Önnur tilfallandi verkefni skv. lögum og reglugerðum

Hæfniskröfur

Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi

Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi

Góð íslensku- og enskukunnátta

Faglegur metnaður og lausnamiðun

Gott orðspor, hreint sakavottorð og ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum og íslenskt starfsleyfi. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Margrét Gylfadóttir

Yfirhjúkrunarfræðingur

Tölvupóstur: kristin.m.gylfadottir@hsn.is

Sími: 4324300

Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir

Tölvupóstur: sylvia.dogg.hjorleifsdottir@hsn.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur HSN Dalvík-Fjallabyggð

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

21.07.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026