Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við rannsóknir á markvissu próteinniðurbroti í krabbameinsfrumum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.07.2026

Umsóknarfrestur

07.08.2026

Doktorsnemi við rannsóknir á markvissu próteinniðurbroti í krabbameinsfrumum

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema til rannsókna og þróun nýrrar kynslóðar líftæknilyfja sem framkalla niðurbrot á krabbameinspróteinum. Verkefnið er styrkt til þriggja ára af Tækniþróunarsjóði Rannís og verður unnið við Lífvísindasetur innan Læknadeildar Háskóla Íslands í samstarfi við líftæknifyrirtækið Gleipnir Lífsmiðju ehf. (Gleipnir Bioforge).

Verkefnið byggir á nýstárlegri nálgun í lyfjafræði, markviss próteinniðurbrot (e. targeted protein degradation), sem miðar að því að eyða sjúkdómsvaldandi próteinum sem hingað til hafa verið talin ómeðhöndlanleg (e. ¿undruggable¿) með hefðbundnum smásameindalyfjum. Doktorsneminn mun stunda þverfaglegar rannsóknir í frumulíffræði og próteinhönnun og mun kynnast helstu aðferðum í sameinda- og lífefnafræði og því helsta sem er að gerast í hönnunarlíffræði (e. synthetic biology).

Guðjón Ólafsson, lektor við Læknadeild HÍ, verður leiðbeinandi í verkefninu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna við þróun, skimun og ítarlega sannprófun á efnilegum lyfjakandídötunum í spendýrafrumulínum.

  • Ábyrgð á framkvæmd og úrvinnslu tilrauna

  • Hönnun og framkvæmd tilrauna í samstarfi við leiðbeinenda

  • Vinna með gögn og birting niðurstaðna

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í lífefnafræði, líftækni, lyfjafræði, sameindalífvísindum eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.

  • Reynsla af vísindastörfum á rannsóknastofu með lífefnafræði-, sameindalíffræði- og frumulíffræðilegum aðferðum.

  • Reynsla af meðhöndlun og ræktun spendýrafrumna.

  • Reynsla af tölvuvinnslu og gagnagreiningu.

  • Reynsla af lífupplýsingafræði eða gervigreindarlíkönum til prótein greiningar eða hönnunar er kostur.

  • Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.

  • Skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni.

Ráðning í starf doktorsnema er háð því að umsókn viðkomandi um doktorsnám hafi verið samþykkt, sbr. Doktorsnám Heilbrigðisvísindastofnun

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Áætlað er að viðkomandi hefji störf um haustið 2026.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark 2 blaðsíður).

  • Ferilskrá.

  • Staðfest afrit af prófskírteinum (grunn- og meistaranám) og einkunnadreifing.

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer.

  • Yfirlit yfir birtingar.

  • Umsækjendum er einnig boðið að senda PDF útgáfu af meistararitgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er), sem og aðrar birtingar sem við eiga (hámark 5 skjöl).

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðjón Ólafsson

lektor

Tölvupóstur: golafsson@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi við rannsóknir á markvissu próteinniðurbroti í krabbameinsfrumum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.07.2026

Umsóknarfrestur

07.08.2026