Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í jarðeðlisfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.06.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026

Doktorsnemi í jarðeðlisfræði

Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema í jarðeðlisfræði við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Verkefnið gengur út á rannsóknir á ferlum sem stýra landrisi og landsigi í eldstöðvarkerfi Krýsuvíkur og tengjast kvikuhreyfingum og breytingum í jarðhitakerfinu. Tilvonandi doktorsnemi mun rannsaka fjölbreytt jarðskorpuhreyfingaferli með mismunandi aðferðum, t.d. reiknilíkönum með bútaaðferð og bayesískri bestun, sem er oft notuð í vöktun eldstöðva.

Starfið er hluti af verkefni sem heitir TRACE: Sviðsmyndir eldfjallavár tengdar jarðskorpuhreyfingum við Krýsuvík, styrkt af Markáætlun Rannís um Náttúruvá. Markmiðið er að greina ástand Krýsuvíkurkerfisins út frá fyrri og núverandi jarðskorpuhreyfingum og herma sviðsmyndir af endurvirkjun misgengja í tengslum við hugsanleg innskot kvikuganga í sprungusveiminn. Tilvonandi doktorsnemi mun fá gott tækifæri til að vinna í grundrannsóknum með tengingu við náttúruvárvöktun og iðnað.

Verkefnisstjóri og aðalleiðbeinandi doktorsverkefnis er Dr. Sonja H. M. Greiner. Einnig verða í doktorsnefnd Dr. Samuel W. Scott (Háskóli Íslands), Dr. Michelle M. Parks (Veðurstofa Íslands) og Dr. Halldór Geirsson við Háskóla Íslands, sem verður einnig tengiliður við deild.

Helstu verkefni og ábyrgð

Doktorsneminn mun rannsaka jarðskorpuhreyfingar í eldstöðvakerfi Krýsuvíkur með landmælingagögnum og líkanagerð.

  • Greiningu og túlkun landmælingagagna, svo sem GNSS og InSAR

  • Bayesíska andhverfugreiningu á stikum aflögunarlíkana

  • Bútalíkön af aflögun í kviku- og gangakerfum eldstöðvarinnar

  • Bútalíkön af jarðhitakerfum

  • Samanburður á aflögunaruppsprettum kviku og jarðhita og áhrif þeirra á hættumat

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf á sviði jarðeðlisfræði, jarðfræði, eðlisfræði, stærðfræði, tölvufræði eða á sambærilegu sviði. Meistaragráðu skal vera lokið þegar starf hefst.

  • Góð greiningarhæfni, reynsla af bútaaðferð er kostur

  • Reynsla af líkönum jarðskorpuhreyfinga eða jarðhitaferla (greinandi og/eða reiknilíkön) er kostur

  • Grundvallarforritunargeta í t.d. Matlab, Python eða sambærilegu

  • Gott vald á ensku, bæði í rituðu og töluðu máli

  • Frumkvæði til að læra nýja aðferðir

  • Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna í teymi

Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands og að umsóknin sé samþykkt af deild.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Gert er ráð fyrir að starf hefjist í fyrsta lagi 1. september 2026, eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins (hámark 2 bls)

  • Afrit af prófskírteinum og námsyfirlit með einkunnum (BS og MS gráður, eða sambærilegt, eða staðfesting frá leiðbeinanda um áætlaðan lokadag meistaraprófs)

  • Umsækjandi má senda inn ritgerðir (BS og MS) og vísindagreinar á PDF formi

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Halldór Geirsson

Prófessor

Tölvupóstur: hgeirs@hi.is

Sonja Heidi Maria Greiner

Rannsóknasérfræðingur

Tölvupóstur: shmgreiner@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Doktorsnemi í jarðeðlisfræði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

25.06.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026