
Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Upplýsingar um starf
Starf
Stuðningsfulltrúi við Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
12.06.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026
Stuðningsfulltrúi við Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum stuðningsfulltrúa til starfa á starfsbraut FSN. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf þar sem lögð er áhersla á að styðja nemendur í námi og daglegu skólastarfi með það að markmiði að efla færni, sjálfstæði og þátttöku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stuðningsfulltrúi vinnur í nánu samstarfi við deildarastjóra og kennara við að veita nemendum einstaklingsmiðaðan stuðning, bæði námslega og félagslega. Verkefnin eru breytileg og fela meðal annars í sér að:
aðstoða nemendur við nám og verkefnavinnu
styðja nemendur í félagslegum samskiptum og daglegum athöfnum
veita stuðning í frímínútum og í hádegishléum eftir þörfum
skipuleggja og aðlaga vinnu sína út frá þörfum nemanda í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
stúdentspróf, hafa lokið námi stuðningsfulltrúa eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
góð hæfni í mannlegum samskiptum
frumkvæði, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileiki
hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Ráðið er í stöðuna frá 15.ágúst 2026 til 15.maí 2027.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga er áfangaskóli sem by¿ður upp á sex bóknámsbrautir til stúdents prófs; félags- og hugvísindabraut, opna braut, náttúru og raunvísindabraut, náttúru- og raunvísindabraut, búfræðilínu, íþrótta- og lýðheilsubraut og nýsköpunar- og frumkvöðlabaut. Einnig er boðið upp á nám á framhaldsskólabraut 2 og viðbótarnám til stúdentsprófs. Við skólann er starfrækt starfsbraut fyrir nemendur sem hafa greiningu fagaðila og geta ekki ny¿tt sér annað nám við skólann.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga er framhaldsskóli með sveigjanlegt og nýstárlegt námsfyrirkomulag þar sem flest námsrýmin eru opin. Frá stofnun skólans hefur skólinn verið leiðandi í breyttum kennsluháttum með því að nýta sér upplýsingatækni í skólastarfi. Allt skipulag skólans tekur mið af því. Síðastliðið ár hefur verið unnið að innleiðingu gervigreindar í námi, kennslu og stjórnun og fékk skólinn styrk úr Sprotastjóði í það verkefni.
Heimasíðu skólans má finna hér: http://www.fsn.is/
Sameyki Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. is is
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Upplýsingar um starf
Starf
Stuðningsfulltrúi við Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
12.06.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026