Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri fjármála

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026

Verkefnisstjóri fjármála

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra fjármála við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Verkefnisstjórinn verður hluti af fjármálahópi sviðsins og mun heyra undir fjármálastjóra. Hlutverk fjármálahóps er að stuðla að hagkvæmum og góðum rekstri sviðsins og veita góða fjármálatengda þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með kennsluuppgjörum

  • Þátttaka í gerð kennsluáætlana fyrir deildir sviðsins

  • Frágangur stundakennarasamninga

  • Umsýsla með ferðaheimildir

  • Umsýsla með innkaupabeiðnum og aðstoð við innkaup

  • Aðstoð við fjármál rannsóknaverkefna

  • Aðstoð við gagnaöflun og fjárhagsáætlun sviðsins

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskiptafræði, fjármála eða skyldra greina

  • Góð tölvufærni

  • Reynsla af fjárhagsupplýsingakerfum er æskileg

  • Reynsla af opinberri stjórnsýslu og starfi í háskólaumhverfi er kostur

  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli

  • Þjónustulund og góð samskiptahæfni

  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hlynur Helgason

Fjármálastjóri

Tölvupóstur: hlynurhe@hi.is

Ingibjörg Óðinsdóttir

Tölvupóstur: ingaodins@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri fjármála

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026