
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Nýdoktor við rannsókn á erfðaóstöðugleika og myndun krabbameina
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.07.2026
Umsóknarfrestur
07.08.2026
Nýdoktor við rannsókn á erfðaóstöðugleika og myndun krabbameina
Laust er til umsóknar fullt starf nýdoktors til rannsókna á hlutverki MITF í að viðhalda stöðugleika erfðaefnis, með áherslu á DNA-eftirmyndun og DNA-viðgerð. Verkefnið er styrkt til þriggja ára af Rannsóknasjóði Vísinda- og tækniráðs (Rannís) og verður unnið við Lífvísindasetur innan Læknadeildar Háskóla Íslands.
Verkefnið byggir á notkun fjölbreyttra nútímalegra aðferða, þar á meðal frumurækt krabbameinsfruma, erfðabreytingum með CRISPR-Cas9, mælingum á DNA-skemmdum og eftirmyndunarálagi (t.d. DNA fiber assays og 53BP1 foci), prótein- og DNA-bindingargreiningum (t.d. CUT&RUN), auk annarra sameindalíffræðilegra, lífefnafræðilegra og frumulíffræðilegra aðferða.
Stefán Sigurðsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands verður leiðbeinandi í verkefninu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsaka hlutverk MITF í eftirmyndun DNA og viðgerð DNA-skemmda
Greina hvernig MITF hefur áhrif á viðhalda stöðugleika erfðamengis
Kanna áhrif MITF á eftirmyndunarálag og DNA-skemmdasvörun
Rannsaka hlutverk mismunandi MITF-ísóforma á frumustarfsemi
Birta og kynna rannsóknaniðurstöður á vísindaráðstefnum og í ritrýndum vísindagreinum
Þátttaka í daglegum rekstri rannsóknaverkefnisins
Hæfniskröfur
Doktorspróf í lífefnafræði, sameindalífvísindum eða skyldum greinum. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.
Reynsla af vísindastörfum á rannsóknastofu með lífefnafræði-, sameindalíffræði- og frumulíffræðilegum aðferðum.
Reynsla af vinnu við frumuræktun spendýrafruma.
Góð tölvufærni er æskileg.
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.
Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni.
Umsækjandi skal hafa lokið doktorsprófi innan sjö ára þegar ráðning hefst. Þó er heimilt að taka tillit til reglna styrkveitenda, veikinda, fæðingarorlofs o.þ.h. við mat á heildartíma frá lokum doktorsgráðu sbr. verklagsreglur HÍ um starf nýdoktora.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Áætlað er að viðkomandi hefji störf eigi síðar en í september 2026.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Greinargerð, þar sem umsækjandi lýsir hvernig hann uppfyllir skilyrði starfsins, hvers vegna hann hefur áhuga á að vinna verkefnið og hugmyndum sínum um framlag til verkefnisins (hámark 2 blaðsíður).
Ferilskrá.
Staðfest afrit af prófskírteinum (grunn- og doktorsnám) og einkunnadreifing.
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer.
Yfirlit yfir birtingar.
Umsækjendum er einnig boðið að senda PDF útgáfu af doktorsritgerð sinni (á hvaða tungumáli sem er), sem og aðrar birtingar sem við eiga (hámark 5 skjöl).
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Nýdoktor við rannsókn á erfðaóstöðugleika og myndun krabbameina
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
07.07.2026
Umsóknarfrestur
07.08.2026