Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Upplýsingar um starf
Starf
Varðstjórar - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.07.2026
Umsóknarfrestur
31.07.2026
Varðstjórar - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir lausar til umsóknar stöður varðstjóra til að sinna verkefnum sérstaks umferðareftirlits og hefðbundinni stjórn vakta á starfsstöðvum embættisins. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðurnar til sex mánaða frá og með 1. september 2026, með fimm ára skipun í huga að loknum reynslutíma.
Framtíðarsýn embættis Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra er framsækið embætti fyrir vaxandi samfélag.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverk lögreglu er að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi, stemma stigum við afbrotum og vinna að uppljóstran brota, greiða götu borgaranna og veita yfirvöldum aðstoð við framkvæmd starfa sinna og halda uppi almannafriði og allsherjarreglu. Verksvið og ábyrgð varðstjóra má leiða af 10. gr. reglugerðar nr. 1051 / 2006 um starfsstig innan lögreglunnar, auk annarra verkefna sem lögreglustjóri felur honum.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar og að hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti tvö ár frá því að hann lauk prófi, sbr. 3. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1051 / 2006.
Æskilegt er að umsækjendur búi yfir haldgóðri þekking á lögreglustörfum, reynsla af lögreglurannsóknum er kostur sem og þekking /reynsla af vettvangsstjórnun.
Góð þekking á landskerfum lögreglu og staðgóð almenn tölvukunnátta.
Framúrskarandi samskipta og samvinnuhæfni.
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Lausnamiðað og jákvætt viðhorf, sveigjanleiki og drifkraftur.
Skipulagshæfni og vandvirkni í vinnubrögðum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Umsóknir sem berast að umsóknarfresti liðnum verða ekki teknar til greina. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir.
Um vaktavinnu er að ræða.
Vakin er athygli á að engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að viðkomandi varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá eða málaskrá lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.
Lögreglustjóri leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Upplýsingar um starf
Starf
Varðstjórar - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.07.2026
Umsóknarfrestur
31.07.2026