Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Afleysingastarf í teymi sálgæslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

28.07.2026

Umsóknarfrestur

12.08.2026

Afleysingastarf í teymi sálgæslu

Landspítali auglýsir laust til umsóknar afleysingastarf í teymi sálgæslu á spítalanum. Um er að ræða afleysingu til 1 árs fyrir tímabilið 1.9.2026-31.8.2027 og starfshlutfall er 100%.

Starfsfólk teymisins veitir sálgæslu og stuðning til sjúklinga, aðstandenda og samstarfsfólks á öllum sviðum spítalans. Teymið sinnir sálgæslu og helgihaldi og starfar í samvinnu með öðru starfsfólki og teymum spítalans. Þjónusta teymisins er veitt án aðgreiningar eftir trúar- eða lífsskoðunum. Markmið sálgæslunnar er að liðsinna þeim sem glíma við sárar tilfinningar, erfiðar tilvistarspurningar og aðlögun breyttra aðstæðna tengda veikindum eða alvarlegum áföllum. Sálgæslan sinnir öllum sviðum Landspítala og ganga starfsmenn hennar einnig bakvaktir og sinna útköllum um kvöld, nætur og helgar.

Innan teymisins starfa nú sjúkrahúsprestar og sjúkrahúsdjákni. Opið er fyrir umsóknir frá öllum sem hafa viðeigandi menntun og þjálfun. Teymið er í virku samstarfi við félög og trúarsamtök utan spítalans til að mæta óskum og þörfum fjölbreytilegs samfélags um þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Störf í teymi sálgæslu á Landspítala

  • Sálgæsla og þjónusta við spítalann og deildir hans

  • Þverfagleg teymisvinna

  • Samstarf við trúar- og/eða lífskoðunarfélög í samræmi við óskir skjólstæðinga

  • Bakvaktir um kvöld, nætur og helgar

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, menntunarviðmið eru Mag. theol, eða djáknanám frá HÍ eða annað nám sem metið er sambærilegt

  • Viðurkennd framhaldsmenntun í sérhæfðri sálgæslu (CPE) eða sambærileg menntun

  • Viðurkenning til starfa innan trúar-og/ eða lífsskoðunarfélags viðkomandi

  • Haldgóð reynsla af sálgæslustarfi; starfsreynsla af sálgæsluþjónustu

  • Reynsla af starfi á sjúkrahúsi er kostur

  • Reynsla af helgihaldi er kostur

  • Mjög góðir samskipta- og samstarfshæfileikar

  • Mjög rík þjónustulund og jákvætt viðmót

  • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sálgæsla, prestur

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Gunnar Rúnar Matthíasson

Tölvupóstur: gmatt@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Afleysingastarf í teymi sálgæslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

28.07.2026

Umsóknarfrestur

12.08.2026