Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.08.2026

Umsóknarfrestur

28.08.2026

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd

Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða sérfræðing á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd.

Greiðslustofa atvinnuleysistrygginga annast afgreiðslu á umsóknum um atvinnuleysisbætur samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Meðal verkefna skrifstofunnar er að taka ákvarðanir um réttindi einstaklinga til atvinnuleysisbóta, greiða bætur og annast eftirlit. Ásamt því að sjá um innheimtur á ofgreiddum atvinnuleysisbótum.

Sérfræðingur mun sinna úrvinnslu og afgreiðslu umsókna, eftirlit með greiðslum atvinnuleysisbóta, tekur þátt í þróun verkferla og öðrum verkefnum á verkefnasviði skrifstofunnar, eftir því sem við á. Starfið kallar á samskipti við önnur svið stofnunarinnar og sérfræðiaðstoð við þjónustuþega hennar.

Starfstöð sérfræðings er á Skagaströnd.

Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki.

Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og búa yfir ríkri samskipta- og skipulagshæfni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Upplýsingagjöf og úrlausn mála í tengslum við greiðslur, viðurlög og bótarétt.

· Afgreiðsla á málum er varða eftirlit með greiðslum atvinnuleysisbóta.

· Samskipti og sérfræðiaðstoð við önnur svið stofnunarinnar og þjónustuþega hennar.

· Margvísleg skrifstofustörf, símsvörun og önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

· Háskólamenntun sem nýtist í starfi.

· Góð íslensku- og enskukunnátta.

· Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.

· Lipurð og færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.

· Góð tölvukunnátta.

· Þekking og reynsla af skrifstofustörfum og opinberri stjórnsýslu telst kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðunin um ráðningu hefur verið tekin.

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jensína Lýðsdóttir

forstöðumaður á Greiðslustofu

Tölvupóstur: jensina.lydsdottir@vmst.is

Sími: 5154800

Auður Inga Ísleifsdóttir

sérfræðingur á mannauðsdeild

Tölvupóstur: audur.i.isleifsdottir@vmst.is

Sími: 5154800

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.08.2026

Umsóknarfrestur

28.08.2026