Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraþjálfun á Göngudeild grindarbotns

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

03.07.2026

Umsóknarfrestur

20.08.2026

Sjúkraþjálfun á Göngudeild grindarbotns

Laus er til umsóknar starf sjúkraþjálfara á Göngudeild grindarbotns sem staðsett er í sjúkraþjálfun á Landspítala við Hringbraut.

Á göngudeild grindarbotns fer fram fjölbreytt en sérhæfð sjúkraþjálfun fyrir skjólstæðinga með vandamál í grindarbotni og mjaðmagrind hvort sem þeir koma að heiman eða eru inniliggjandi. Boðið verður upp á sérhæfða, markvissa þjálfun í starfið hjá reynslumiklum sjúkraþjálfara innan sérhæfingarinnar.

Um er að ræða framtíðarstarf. Starfshlutfall er 50% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skoðun, mat og meðferð vegna vandamála í grindarbotni og mjaðmagrind

  • Skráning og skýrslugerð

  • Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda

  • Þátttaka í þverfaglegum teymum

  • Þátttaka í fagþróun

  • Þátttaka í rannsóknum

  • Afleysing á legudeildum

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari

  • Starfsreynsla á fagsviðinu

  • Viðbótarmenntun eða námskeið sem nýtast í starfi eru kostur

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi

  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót

  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraþjálfun, sérfræðingur,

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 20.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ragnheiður S Einarsdóttir

Tölvupóstur: ragnheie@landspitali.is

Sími: 543 9306

Ingibjörg Magnúsdóttir

Tölvupóstur: ingimagn@landspitali.is

Sími: 543-9304

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraþjálfun á Göngudeild grindarbotns

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

03.07.2026

Umsóknarfrestur

20.08.2026