
Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.08.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026
Deildarstjóri á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum?
Barna- og fjölskyldustofa leitar eftir ábyrgum leiðtoga í starf deildarstjóra á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Heimilið er starfrækt í Gunnarsholti, rétt utan við Hellu og veitir börnum á aldrinum 12-18 ára sérhæfða meðferð. Starfið heyrir undir forstöðumann heimilisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Halda utan um daglegt og faglegt starf.
Samstarf við meðferðarteymi Barna- og fjölskyldustofu.
Ábyrgð á að framfylgja meðferðaráætlun og hafa yfirsýn yfir stöðu skjólstæðinga.
Ábyrgð á að fylgja eftir innleiðingu gagnreyndra aðferða í meðferðarstarfi.
Samskipti við samstarfsaðila og forsjáraðila ungmenna.
Stuðningur og ráðgjöf við starfsfólk.
Skipulag vakta og mönnunar.
Ábyrgð á starfsemi og stjórnun heimilisins í samstarfi við forstöðumann.
Hæfniskröfur
BA/BS próf sem nýtist í starfi eða sambærilegt, framhaldsnám er kostur.
Þekking og reynsla á þeim gagnreyndu aðferðum sem Barna- og fjölskyldustofa starfar eftir.
Þekking og reynsla á meðferðarvinnu og meðferðarstarfi.
Önnur reynsla sem nýtist í starfi.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
Sveigjanleiki og þjónustulund.
Góð almenn tölvukunnátta.
Góð íslensku- og enskukunnátta í mæltu og rituðu máli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um, óháð kyni.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem gerðar eru. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Erlingsdóttir
deildarstjóri Lækjarbakka
Tölvupóstur: gudbjorg.erlingsdottir@bofs.is
Sími: 5302600

Þjónustuaðili
Barna- og fjölskyldustofa
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri á meðferðarheimilinu Lækjarbakka
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.08.2026
Umsóknarfrestur
17.08.2026