
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
23.06.2026
Umsóknarfrestur
03.07.2026
Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Við óskum eftir að ráða jákvæðan, áreiðanlegan og þjónustulipran einstakling með ríka samskipta- og samstarfshæfni til starfa á skurðstofur í Fossvogi. Starfið er fjölbreytt og felst m.a. í ræstingu á skurðstofum og vöknun, flutningum sjúklinga frá legudeildum í aðgerðir og umsjón með kaffistofu starfsfólks. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu og er lágmarksaldur umsækjanda 18 ár. Unnið er á vöktum, alla virka daga, og bakvaktir um helgar. Starfið er laust frá 1. september 2026 eða eftir nánari samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100%.
Á deildinni eru 8 skurðstofur sem þjóna 5 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 6000 aðgerðir. Þar starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi.
Í boði er einstaklingsaðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ræsting á skurðstofum og skurðstofugangi
Flutningur sjúklinga frá legudeildum í aðgerðir á skurðstofum
Þrif og umhirða á kaffistofu starfsfólks
Frágangur og pantanir á líni, eldhúsvörum og öðrum aðföngum
Sækja mat fyrir starfsfólk í matsal
Önnur tilfallandi störf í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum
Vandvirkni skipulögð vinnubrögð
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Sjálfstæði í starfi
Stundvísi og áreiðanleiki
Hæfni til að vinna í teymi
Góð íslenskukunnátta er áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, starfsmaður, ræstingar, þrif, þjónustustörf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
23.06.2026
Umsóknarfrestur
03.07.2026