Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri á rannsóknastofum í Lyfjafræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026

Verkefnastjóri á rannsóknastofum í Lyfjafræðideild

Við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands er laust til umsóknar fullt starf verkefnastjóra á rannsóknastofum deildarinnar.

Við Lyfjafræðideildina fer fram nám, kennsla og rannsóknir á sviði lyfjafræði og lyfjavísinda. Verkefnastjórinn gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri rannsóknastofa deildarinnar og styður við rannsóknir, kennslu og verklega þjálfun nemenda og starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á daglegum rekstri rannsóknastofa Lyfjafræðideildar, þ.m.t. skipulagi, innkaupum og birgðahaldi.

  • Ábyrgð á rannsóknartækjum, þ.m.t. notkun, viðhaldi, kvörðun og þjónustu.

  • Þjálfun, leiðsögn og aðstoð við starfsfólk og nemendur í notkun og umgengni rannsóknartækja, ásamt eftirfylgni með verklagi og reglulegu eftirliti með öryggisbúnaði rannsóknastofa.

  • Stuðningur við rannsóknir, þjónusturannsóknir og verklega kennslu eftir því sem við á.

  • Umsjón með öryggis-, gæða- og verkferlum á rannsóknastofunum.

  • Þátttaka í mati á tækjaþörf, uppbyggingu aðstöðu, umbótaverkefnum og undirbúningi breytinga á rannsóknastofurekstri.

  • Umsjón með og kennsla í öryggisnámskeiði.

Hæfniskröfur

  • Bakkalárpróf sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði lyfjafræði, lyfjavísinda, efnafræði, lífvísinda eða skyldra greina. Meistarapróf er kostur.

  • Reynsla af störfum á rannsóknarstofu og þekking á rannsóknaraðferðum sem nýtast í lyfjavísindum.

  • Reynsla af rekstri, umsjón eða skipulagi rannsóknarstofa er kostur.

  • Reynsla af notkun, viðhaldi og/eða kvörðun rannsóknartækja.

  • Reynsla af notkun HPLC/UPLC, litrófsgreiningartækja, DLS-tækja, frostþurrkara eða skylds búnaðar er kostur.

  • Þekking á öryggis- og gæðamálum rannsóknarstofa er kostur.

  • Hæfni til skipulagningar, sjálfstæðra vinnubragða og lausnamiðaðrar nálgunar.

  • Rík þjónustulund og góð samskipta- og samstarfshæfni.

  • Góð enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.

  • Góð íslenskukunnátta er kostur.

  • Reynsla af kennslu, leiðsögn, verkefnastjórnun eða innleiðingu breytinga er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Á næstu árum eru fyrirhugaðar breytingar á aðstöðu Heilbrigðisvísindasviðs í tengslum við uppbyggingu nýs húss sviðsins, þ.m.t. á rekstri rannsóknastofa sviðsins. Starfið getur því þróast með breyttu skipulagi rannsóknaraðstöðu, aukinni samnýtingu tækja og þjónustu, nýjum verkferlum og breyttum þörfum deildar og sviðs.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Elvar Örn Viktorsson

varadeildarforseti

Tölvupóstur: eov@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri á rannsóknastofum í Lyfjafræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026