Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliðar með framhaldsmenntun á Hlévang í Reykjanesbæ

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

30.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026

Sjúkraliðar með framhaldsmenntun á Hlévang í Reykjanesbæ

Hlévangur er ný deild innan HSS sem áætlað er að opni á seinni hluta árs 2026. Deildin verður 24 rýma skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa heima í sjálfstæðri búsetu.

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða til starfa sjúkraliða með framhaldsnám í öldrunarhjúkrun

Í starfinu felst, auk almennra sjúkraliðastarfa, vaktstjórn og þátttaka í gæða- og umbótastarfi deildar.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í þróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Um er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.

Um er að ræða vaktavinnu. Störfin eru laus frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn sjúkraliðastörf

  • Vakstjórn

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þátttaka í gæða- og umbótastarfi

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi

  • Framhaldsnám í öldrunarhjúkrun er nauðsynlegt

  • Farsæl reynsla af hjúkrun aldraðra eða önnur sjúkraliðareynsla sem nýtist í starfi

  • Faglegur metnaður

  • Góð samskiptahæfni

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Frumkvæði

  • Skipulögð og öguð vinnubrögð

  • Geta til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku er nauðsynleg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Aðrar upplýsingar

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.

HSS er reyklaus vinnustaður

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Andrea Klara Hauksdóttir

Tölvupóstur: andrea.k.hauksdottir@hss.is

Sími: 422-0500

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliðar með framhaldsmenntun á Hlévang í Reykjanesbæ

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

30.07.2026

Umsóknarfrestur

14.08.2026