
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunardeildarstjóri/hótelstjóri sjúkrahótels við Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.07.2026
Umsóknarfrestur
30.07.2026
Hjúkrunardeildarstjóri/hótelstjóri sjúkrahótels við Hringbraut
Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf hjúkrunardeildarstjóra/ hótelstjóra sjúkrahótels á lóð Landspítala við Hringbraut. Við leitum að kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi sjúkrahótelsins og byggja upp sterka liðsheild. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og annað samstarfsfólk.
Hjúkrunardeildarstjóri sem jafnframt er hótelstjóri stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um málefni hótelsins. Markmiðið er að stytta meðallegutíma á spítalanum, efla dag- og göngudeildarþjónustu og bæta skilvirkni. Notendur sjúkrahótels verða ekki innskrifaðir á legudeildir á sama tíma og þeir dvelja á sjúkrahóteli, þeir þurfa að vera sjálfbjarga en gætu þurft eftirlit og aðstoð hjúkrunarfræðings/sjúkraliða eða sértæka þjónustu á dag- og göngudeildum.
Sjúkrahótelið er 75 herbergja og þar geta einnig dvalið aðstandendur sjúklinga, foreldrar sem bíða fæðingar eða fólk sem býr fjarri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna Sjúkrahótelsins
Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði sjúkrahótelsins
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Framhaldsmenntun í hjúkrun og/ eða önnur framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
Þekking og reynsla af öryggis-, gæða- og umbótastarfi nauðsynleg
Reynsla í stjórnunarhlutverki, þ.e. faglegri ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslegri ábyrgð er nauðsynleg
Reynsla af rekstri sjúkrahótels er æskileg
Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfi
Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, deildarstjóri, stjórnunarstarf
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunardeildarstjóri/hótelstjóri sjúkrahótels við Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.07.2026
Umsóknarfrestur
30.07.2026