Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur Náttúruverndarstofnunar - tímabundin afleysing til eins árs
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.07.2026
Umsóknarfrestur
27.07.2026
Lögfræðingur Náttúruverndarstofnunar - tímabundin afleysing til eins árs
Náttúruverndarstofnun auglýsir laust til umsóknar vegna afleysingar tímabundið starf lögfræðings til eins árs. Leitað er að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi með áhuga á náttúruvernd, stjórnsýslu og umhverfismálum. Náttúruverndarstofnun er með 15 starfsstöðvar víðs vegar um landið og eru höfuðstöðvar stofnunarinnar á Hvolsvelli. Starfsmaður getur valið sér starfsstöð úr þeim hópi.
Starfið felur í sér fjölbreytt lögfræðileg verkefni á starfssviði stofnunarinnar einkum vinnu við stjórnsýslumál á sviði náttúruverndar, veiðistjórnunar, samninga um atvinnustarfsemi innan þjóðgarða, ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk, umsagnir, leyfismál og úrlausn annarra lögfræðilegra álitaefna.
Lögfræðingurinn mun vinna náið með sérfræðingum stofnunarinnar og taka þátt í samstarfi við ráðuneyti, aðrar stofnanir, sveitarfélög, hagsmunaaðila og almenning. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir lögfræðing sem vill leggja sitt af mörkum til verndar íslenskrar náttúru og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði opinberrar stjórnsýslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna við stjórnsýslumál, ákvarðanir og málsmeðferð
Rýni og undirbúningur leyfa, umsagna og annarra stjórnsýslugagna
Umsagnir um þingmál, reglugerðir og mál til ráðuneyta
Umsagnir og gagnaöflun vegna stjórnsýslukæra
Lögfræðileg ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks stofnunarinnar
Meðferð beiðna um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum og upplýsingalögum
Þátttaka í gerð verklags, umbótaverkefnum og samræmingu málsmeðferðar
Greining á lögum, reglugerðum og eftir atvikum EES reglugerðum sem varða starfssvið stofnunarinnar
Samskipti við ráðuneyti, stofnanir, sveitarfélög, hagsmunaaðila og almenning
Hæfniskröfur
Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Þekking á umhverfisrétti, náttúruvernd, stjórnsýslurétti eða sambærilegum málaflokkum er kostur
Reynsla af lögfræðilegri ráðgjöf, málsmeðferð eða gerð stjórnsýsluákvarðana er kostur
Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Góð samskipta- og samstarfshæfni
Skipulögð, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð
Frumkvæði, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun
Stafræn hæfni og vilji til að taka þátt í þróun og umbótum í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um er að ræða tímabundna afleysingu til eins árs. Starfshlutfall er 100%.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra viðkomandi stéttarfélaga hafa gert.
Vinsamlegast látið ferilskrá og kynningarbréf fylgja umsókninni þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veita Hákon Ásgeirsson sviðsstjóri Stjórnunar- og verndarsvið, hakon.asgeirsson@nattura.is og Margrét Jóna Ísólfsdóttir mannauðsstjóri, margret.jona.isolfsdottir@nattura.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. júlí 2026.
Um Náttúruverndarstofnun
Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar. Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 15 um allt land.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hákon Ásgeirsson
Tölvupóstur: hakon.asgeirsson@nattura.is
Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Tölvupóstur: margret.jona.isolfsdottir@nattura.is
Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Lögfræðingur Náttúruverndarstofnunar - tímabundin afleysing til eins árs
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.07.2026
Umsóknarfrestur
27.07.2026