Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Þróunar- og verkefnisstjóri við Jafnréttisskóla GRÓ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.07.2026

Umsóknarfrestur

31.07.2026

Þróunar- og verkefnisstjóri við Jafnréttisskóla GRÓ

Laust er til umsóknar, tímabundið til eins árs,fullt starf þróunar- og verkefnisstjóra Jafnréttisskóla GRÓ við Háskóla Íslands (GRÓ GEST).

Jafnréttisskólinn er alþjóðlegt þverfaglegt náms- og þjálfunarverkefni á Hugvísindasviði Háskóla Íslands og er hluti af starfsemi GRÓ Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu. Markmið skólans er að efla þekkingu, faglega getu og leiðtogahæfni á sviði jafnréttis í alþjóðlegu samstarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkefnisstýring og kortlagning samstarfsaðila og áframhaldandi þróun alþjóðlegs samstarfsnets Jafnréttisskóla GRÓ.

  • Uppbygging og þróun verkefna með fyrrverandi nemendum skólans (alumni-starfsemi) og alþjóðlegu tengslaneti nemenda.

  • Þátttaka í þróun nýrra samstarfsverkefna við innlenda og erlenda háskóla, alþjóðastofnanir og aðra samstarfsaðila.

  • Vinna við þróunarverkefni, fjármögnunaráætlanir og umsóknir í innlenda og alþjóðlega samkeppnissjóði.

  • Stuðningur við verkefnisstjórn og þátttaka í þróun námskeiða, þjálfunarverkefna og annarrar fræðslustarfsemi á vettvangi og á netinu.

  • Kynningar- og upplýsingastarf, þar á meðal þróun kynningarefnis og markviss miðlun upplýsinga um starfsemi skólans á samfélagsmiðlum og öðrum starfrænum miðlum.

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf sem nýtist í starfi, svo sem hugvísindum, félagsvísindum eða öðrum viðeigandi fræðasviðum. Doktorspróf er kostur.

  • Reynsla af jafnréttis-, alþjóða- og/eða þróunarmálum.

  • Reynsla af samskiptum við alþjóðastofnanir, háskólasamtök eða félagssamtök er kostur.

  • Reynsla af þróun samstarfsverkefna við alþjóðastofnanir, háskólasamtök eða félagssamtök er kostur.

  • Reynsla af alþjóðlegu og/eða akademísku starfsumhverfi er kostur.

  • Reynsla af þróun samstarfsverkefna, styrkjaöflun, gerð styrkumsókna og/eða fjármögnunaráætlana er kostur.

  • Góð færni í Excel er kostur.

  • Góð enskukunnátta í ræðu og riti.

  • Reynsla af notkun samfélagsmiðla og stafrænnar miðlunar.

  • Skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.

  • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og góð hæfni í mannlegum samskiptum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Irma Jóhanna Erlingsdóttir

Tölvupóstur: irma@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Þróunar- og verkefnisstjóri við Jafnréttisskóla GRÓ

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

17.07.2026

Umsóknarfrestur

31.07.2026