Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri á innkaupadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.06.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026

Verkefnastjóri á innkaupadeild

Ertu jákvæður, lausnamiðaður og þjónustulipur einstaklingur með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á hjúkrunar- og rekstrarvörum?

Innkaupadeild Landspítala leitar að öflugum, skipulögðum og áhugasömum verkefnastjóra til samstarfs við útboðsteymi innkaupadeildar sem sér um opinber innkaup á vörum, tækjum og þjónustu. Við leitum að einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfni, framúrskarandi samskiptahæfni og áhuga á að skapa árangur í flóknu og krefjandi umhverfi.

Innkaupadeild Landspítala heyrir undir rekstrar- og mannauðssvið Landspítala en helstu verkefni deildarinnar eru útboð, verðfyrirspurnir, samningskaup, samningar, eftirfylgni samninga og samningastjórnun. Verkefnastjóri við opinber innkaup á hjúkrunar og rekstrarvörum á Innkaupadeild er í miklum samskiptum við hagaðila innan Landspítala og birgja á markaði.

Starfshlutfall er 100% og er upphafsdagur starfs samkomulag.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna við undirbúning og úrvinnslu á útboðum í rafrænu útboðskerfi

  • Vinna við verðfyrirspurnir, samningskaup og samningsgerð

  • Samstarf og ráðgjöf við deildir Landspítala (hagaðila) við þarfagreiningu og mótun á tæknilegum og klínískum kröfum í útboðum

  • Greina tækifæri til hagkvæmustu innkaupa á heilbrigðismarkaði

  • Eftirfylgni með samningum, gæðum og þjónustustigi birgja (samningastjórnun)

  • Aðkoma að gerð ferla og verklagsreglna um opinber innkaup

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, háskólapróf í hjúkrunarfræði eða önnur menntun á sviði heilbrigðisvísinda er mikill kostur

  • Viðbótarmenntun í Verkefnastjórnun (t.d. MPM, IPMA eða PRINCE2 vottun) og/eða menntun á sviði viðskipta eða opinberrar stjórnsýslu er mikill kostur

  • A.m.k. 5 ára starfsreynsla, reynsla úr heilbrigðiskerfinu er mikill kostur

  • Þekking á lögum um opinber innkaup nr. 120/2016 og reglugerðum á því sviði er kostur

  • Þekking á heilbrigðismarkaði og reglugerðum er varða lækningatæki og rekstrarvörur

  • Þekking og reynsla á hjúkrunar- og rekstrarvörum

  • Áhugi á innkaupum og hagræðingu í innkaupum

  • Þekking og eða áhugi á umhverfismálum

  • Reynsla af notkun rafrænna útboðskerfa (sérstaklega TendSign) er mikill kostur

  • Reynsla af verkefnastjórnun og hagnýtri gagna- og markaðsgreiningu er kostur

  • Hæfni til að starfa undir álagi og forgangsraða verkefnum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli, þekking á norðurlandamáli er mikill kostur

  • Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð ásamt viðeigandi tölvufærni

  • Framúrskarandi samstarfshæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 4/5

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, innkaupafulltrúi, skrifstofustarf

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hulda Harðardóttir

Tölvupóstur: huldahar@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri á innkaupadeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

30.06.2026

Umsóknarfrestur

04.08.2026