
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Lífeindafræðingur á hjartarannsóknarstofu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
07.08.2026
Umsóknarfrestur
20.08.2026
Lífeindafræðingur á hjartarannsóknarstofu
Laust er til umsóknar starf lífeindafræðings á hjartarannsóknarstofu Landspítala. Á einingunni starfar 25 manna samhentur hópur í þverfaglegulegu teymi og í nánu samstarfi við aðra faghópa.
Starfsemi hjartarannsóknastofu er fjölbreytt og enginn dagur er eins. Við þjónustum sjúklinga sem ýmist eru inniliggjandi eða koma frá göngudeildum. Vaxandi þáttur starfsemi tengist fjarþjónustu við skjólstæðinga í gangráðs- og bjargráðseftirliti.
Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu og á bakvöktum. Vegna bakvakta þarf viðkomandi að búa á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Ráðið er í starfið frá 1. september 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna á hjartaþræðingarstofu með sérstakri áherslu á raflífeðlisfræðilegar aðgerðir og kransæðavíkkanir auk aðstoðar við gangráðs- og bjargráðsísetningar
Vinna við framkvæmd áreynsluprófa, borðveltiprófa, öndunarprófa og hjartalínurit
Úrlestur hjartarita, gangráðs- og bjargráðseftirlit, bæði stað- og fjarvöktun
Úrvinnsla og túlkun niðurstaðna í samvinnu við hjartalækna
Þátttaka í öðrum verkefnum á hjartarannsókn eftir nánari ákvörðun stjórnanda
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi lífeindafræðings
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Frumkvæði og faglegur metnaður
Hæfni í teymisvinnu
Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lífeindafræðingur
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Lífeindafræðingur á hjartarannsóknarstofu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
07.08.2026
Umsóknarfrestur
20.08.2026