Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Löglærður fulltrúi á Hvolsvelli
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.06.2026
Umsóknarfrestur
13.07.2026
Löglærður fulltrúi á Hvolsvelli
Starf löglærðs fulltrúa í þinglýsingadeild Sýslumannsins á Suðurlandi er laust til umsóknar. Starfsstöð er á skrifstofu embættisins á Hvolsvelli.
Embætti sýslumanns á Suðurlandi er stjórnsýslu- og þjónustustofnun sem reist er á gömlum grunni og annast fjölþætt viðfangsefni framkvæmdarvalds ríkisins í héraði. Áherslur vinnustaðarins byggja á góðri þjónustu, skilvirku verklagi og öflugri liðsheild.
Leitað er að áreiðanlegum einstaklingi sem er reiðubúinn að leiða mikilvægan málaflokk í starfsemi sýslumanns og afla sér fjölbreyttrar reynslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér umsjón og faglega ábyrgð á þinglýsingum við embættið ásamt því að annast daglega stjórn skrifstofunnar á Hvolsvelli. Fulltrúi sinnir upplýsingagjöf og leiðbeiningum við samstarfsfólk, viðskiptavini og hagsmunaaðila og vinnur að umbótaverkefnum í starfsemi embætta sýslumanna. Fulltrúinn hefur og með höndum verkefni er lúta að sáttamiðlun í landamerkjamálum.
Auk þess sinnir fulltrúi tilfallandi verkefnum á starfsstöð, sem falla undir önnur málefnasvið embættisins, svo sem lögbókendavottanir, móttöku viðskiptavina vegna dánarbúa, fjölskyldumála o.fl. Fulltrúi sinnir tilfallandi afleysingum fyrir fulltrúa annarra málaflokka embættisins, hvort heldur er á starfsstöðinni á Hvolsvelli eða öðrum skrifstofum embættisins.
Starfið heyrir undir sýslumann. Um fullt starf er að ræða og er það þegar laust. Upphaf starfstíma verður eftir samkomulagi.
Vakin er athygli á því að þann 1. janúar 2027 tekur til starfa sameinað embætti sýslumanns. Markmið sameiningar eru meðal annarra bætt þjónusta, aukin skilvirkni og efling starfsemi embættisins á landsbyggðinni. Sameiningin kann að hafa áhrif á verkefni og hlutverk fulltrúa, en starfsfólk embættanna sem er í föstu starfssambandi þegar lögin taka gildi, öðlast starf hjá hinu nýja embætti.
Hæfniskröfur
Embættis- eða meistarapróf í lögfræði og önnur skilyrði b.-f. liðar 2. mgr. 3.gr. sbr. 2. ml. 2. mgr. 5.gr. l. nr. 50/2014.
Þekking á verkefnum sýslumanna er kostur.
Góð þekking á þinglýsingum og/eða eignarétti er kostur.
Þekking á aðferðafræði sáttamiðlunar er kostur.
Geta til að vinna sjálfstætt og í teymum að greiningu og úrlausn lögfræðilegra álitaefna.
Stundvísi, auga fyrir smáatriðum, öguð og skilvirk vinnubrögð.
Frumkvæði, forystuhæfileikar og áhugi fyrir nýsköpun í starfi.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund.
Góð almenn tölvukunnátta er áskilin.
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.
Umsókn um starfið þarf að fylgja afrit af prófskírteinum ásamt ítarlegri starfsferilskrá og upplýsingum um meðmælendur. Einnig kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið. Horft verður til þess að umsækjendur falli sem best að þörfum starfstöðvarinnar og embættisins í heild. Við ráðningu verður tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Anna Lilja Ragnarsdóttir
staðgengill sýslumanns
Tölvupóstur: anna.lilja.ragnarsdottir@syslumenn.is
Sími: 4582800
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Upplýsingar um starf
Starf
Löglærður fulltrúi á Hvolsvelli
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.06.2026
Umsóknarfrestur
13.07.2026