Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

40%

Starf skráð

19.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026

Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf

Við viljum ráða jákvæðan og þjónustulundaðan liðsmann, með ríka samskipta- og samstarfshæfni, í býtibúr og ritaraþjónustu líknardeildar Landspítala í Kópavogi. Unnið er frá kl. 16-20 virka daga og aðra hverja helgi. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi og gæti hentað vel sem starf samhliða námi, þá sérstaklega ef um er að ræða heilbrigðistengt nám.

Deildin er 12 rúma deild og sinnir sérhæfðri einkennameðferð og lífslokameðferð sjúklinga með krabbamein eða aðra langvinna sjúkdóma. Við leggjum áherslu á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða aðlögun.

Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Ólöfu Ásdísi, deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starf í býtibúri

  • Aðstoð við máltíðir sjúklinga

  • Pantanir og frágangur á vörum

  • Almenn og sérhæfð ritarastörf á deild s.s. móttaka sjúklinga, tímabókanir, símsvörun, upplýsingagjöf, útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfi Landspítala

  • Ábyrgð á daglegum viðfangsefnum deildar samkvæmt verklagi

  • Önnur tilfallandi störf í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Góð samskiptahæfni

  • Sjálfstæði, skipulögð og öguð vinnubrögð

  • Tekur þátt í teymisvinnu

  • Tölvufærni

  • Góð aðlögunarhæfni

  • Þjónustulund og jákvæðni

  • Lágmarksaldur umsækjanda er 18 ár

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérhæfður starfsmaður, ritari, skrifstofustörf, eldhússtörf, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Kópavogsgerði 6 c-d, 200 Kópavogi

Starfshlutfall er 40%

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ólöf Ásdís Ólafsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: olofao@landspitali.is

Sími: 824-1349

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

40%

Starf skráð

19.08.2026

Umsóknarfrestur

31.08.2026