Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Launa- og mannauðsfulltrúi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.07.2026

Umsóknarfrestur

23.07.2026

Launa- og mannauðsfulltrúi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH) leitar eftir metnaðarfullum, drífandi og útsjónarsömum einstaklingi í starf launa- og mannauðsfulltrúa á mannauðssviði embættisins. Um er að ræða spennandi starf í lifandi umhverfi.

Mannauðsteymi LRH sinnir ráðgjöf og stuðningi við stjórnendur og starfsfólk embættisins og vinnur markvisst að því að skapa jákvætt og heilsueflandi vinnuumhverfi. Umsækjendur þurfa því að hafa gaman af því að vinna í teymi og brennandi áhuga á því að hjálpa starfsfólki embættisins að ná árangri og líða vel í starfi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 500 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn launavinnsla og skráningar í mannauðskerfi Orra og Vinnustund.

  • Ráðgjöf og upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsfólks.

  • Skráningar og tilkynningar vinnuslysa.

  • Gerð ráðningasamninga og fylgiskjala.

  • Greiningarvinna og úrvinnsla á sviði kjara- og launamála.

  • Samskipti við stjórnendur, starfsfólk, lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila.

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun. Háskólamenntun á sviði mannauðsmála æskileg.

  • Þekking og reynsla af launavinnslu og túlkun kjarasamninga.

  • Þekking og reynsla á sviði mannauðsmála æskileg.

  • Þekking á launakerfi Orra og Vinnustund æskileg.

  • Rík þjónustulund, jákvæðni, samskiptafærni og virk umbótahugsun.

  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæm vinnubrögð.

  • Góð tölvukunnátta og færni í Excel.

  • Góð íslenskufærni.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurveig Helga Th. Jónsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: sigurveig.helga@lrh.is

Sími: 444-1000

Edda Björg Sigmarsdóttir

Staðgengill mannauðsstjóra

Tölvupóstur: edda.sigmarsdottir@lrh.is

Sími: 444-1000

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Launa- og mannauðsfulltrúi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.07.2026

Umsóknarfrestur

23.07.2026